Skapandi sumarstörf efndu til uppskeruhátíðar í ungmennahúsinu Molanum sl. fimmtudag þar sem gestir gátu skoðað afrakstur listhópanna, en þetta er átjánda sumarið sem ungt listafólk starfar á vegum Kópavogsbæjar í skapandi verkefnum.
Verkefnin í ár voru 17 talsins en að baki þeim stóðu 25 ungir listamenn. Þess að auki unnu fjórir vegglistamenn á vegum Kópavogsbæjar að því að glæða veggi Kópavogs lífi með listaverkum sínum.
Þétt var setið í Molanum á lokahófinu en listaverkin teygðu sig alla leið í bílakjallarann þar sem dansverk og lifandi tónlist fengu að njóta sín. Meðal verkefna sem sýnd voru á lokahófinu voru barnabókin Eva og Amma Landvörður, stuttmyndin Lundur, dans- og tónlistarverkefnið Hreyfing og myndskreytt orðabók um tungumál hvalveiðimanna.
Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa verður haldin tvisvar í ár en seinni hátíðin verður fimmtudaginn 17. ágúst í Salnum, Kópavogi.