189 atkvæðum var breytt í kosningunum

Fjöldi breyttra atkvæða í Kópavogi voru samtals 189 í sveitarstjórnarkosningunum sl. laugardag.

Flestar breytingar voru á lista D eða alls 114 og fæstar á lista V eða 1.

Breytingarnar voru sem hér segir:

B listi Framsóknarflokksins: Alls var 17 atkvæðaseðlum breytt.

C listi Viðreisnar: Alls var 12 atkvæðaseðlum breytt.

D listi Sjálfstæðisflokks: Alls var 114 atkvæðaseðlum breytt.

M listi Miðflokksins: Alls var 9 atkvæðaseðlum breytt.

P listi Pírata: Alls var 8 atkvæðaseðlum breytt.

S listi Samfylkingarinnar: Alls var 19 atkvæðaseðlum breytt.

V listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs: Alls var 1 atkvæðaseðli breytt.

Y listi Vina Kópavogs: Alls var 9 atkvæðaseðlum breytt.

Útstrikanir eða færsla í sæti neðar voru eftirfarandi

Andri Steinn Hilmarsson, XD 12
Ásdís Kristjánsdóttir, XD 19
Bergljót Kristinsdóttir XS 14
Hannes Steindórsson XD 70
Helga Jónsdóttir XY 3
Hjördís Ýr Johnson XD 10
Kolbeinn Reginsson XY 3
Orri Vignir Hlöðversson XB 11
Sigrún Hulda Jónsdóttir XB 6
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir XP 1
Theodóra S Þorsteinsdóttir XC 7

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar