17. júní verður fagnað með fimm hverfishátíðum í Kópavogi

Þjóðhátíðardegi verður fagnað í Kópavogi með fimm hverfishátíðum,  í og við menningarhúsin í Kópavogi, við Fífuna, í Fagralundi, við Salalaug og Kórinn. Fyrirkomulagið var tekið upp á síðasta ári og sló rækilega í gegnog var því ákveðið að endurtaka leikinn. 

Á meðal þeirra sem fram koma á hverfishátíðum við íþróttahúsin fjögur eru: Bríet, Selma og Regína Ósk, Lína Langsokkur, Saga Garðarsdóttir, Ræningjarnir úr Kardimommubæ, Leikhópurinn Lotta, Dansskóli Birnu Björns, Karíus og Baktus, Þorri og Þura, Gugusar, Sikurs, Eva Ruza og Hjálmar.

Listamennirnir koma allir fram á tveimur mismunandi stöðum; dagskráin er því ólík á milli svæða en alls staðar flott og skemmtileg. Boðið verður upp á hoppukastala og tívólítæki og er allt ókeypis. Grímuskylda er á hátíðarsvæðinu og verða allar hendur sprittaðar sem í leiktækin kona.

Við  menningarhúsin verður dagskráin með öðru sniði, þar verður boðið upp á tónlistaratriði, draumafangarasmiðju, sirkussýningu og ævintýraþraut fyrir fjölskylduna svo eitthvað sé nefnt. 
Tekið verður mið af gildandi fjöldatakmörkunum og biðjum við foreldra og forráðamenn um að setja börnin í forgang og leyfa þeim að njóta hátíðarhaldanna. Sérstök sóttvarnarhólf verða sett upp á svæðinu þar sem 300 manns geta verið í hverju hólfi fyrir sig.

Allir eru hvattir til að viðhalda eins metra fjarlægð þar sem því verður viðkomið. 
Bæjarbúar eru hvattir til að halda daginn hátíðlegan í sínu hverfi; skreyta og flagga og ganga síðan 
eða hjóla á hátíðarsvæðið næst heimili sínu.  
 
Dagskrá 
10.00-10:30  17.júní-hlaup á Kópavogsvelli í umsjón Frjálsíþróttadeildar  Breiðabliks.  Ætlað börnum í 1.- 6.bekk. 
12.00-14.00: Hátíðarsvæði opna við Fífuna, Fagralund, Versali og Kórinn. Hoppukastalar og tæki sett í gang.
14.00 –16.00   Dagskrá á hverfishátíðum, við Fífuna, Fagralund, Versali,  og Kórinn. 
13.00-16.00: Hátíðardagsskrá á útisvæðinu við menningarhúsin í Kópavogi og inni í Bókasafni Kópavogs, Náttúrufræðistofu Kópavogs og í Gerðarsafni.
17.00: Tónleikar í Salnum.
Aðrir opnunartímar:
10.00-18.00: Sundlaug Kópavogs: 
10.00 – 18.00: Gerðarsafn
11.00-17.00: Náttúrufræðistofu Kópavogs og Bókasafn Kópavogs. 
 

Áhersla að gleðja börn og ungmenni

„Það er ríkur vilji hjá bænum að gefa bæjarbúum tækifæri til þess að gleðjast á þjóðhátíðardaginn og  halda 17. júní hátíðlegan. Hátíðarhöldin í fyrra tókust með eindæmum vel en þá breyttum við til vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu. Við endurtökum því leikinn og bjóðum upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá þar sem áherslan er á að gleðja börn og ungmenni,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Fólk komi gangandi eða hjólandi

„Við munum dreifa hátíðarhöldunum um bæinn á svæði sem geta tekið á móti bæjarbúum innan þeirra  fjöldatakmarkana sem íboði er. Við höfum lagt kapp áað halda í gleðina og vonum að íbúar taki  hverfishátíðunum vel líkt og í fyrra. Við leggjum áherslu á að fólk komi gangandi eða hjólandi á hátíðarsvæðin,  njóti í sínu hverfi og leyfi börnunum fyrst og fremst að ganga fyrir. Svo er bara um að gera að draga fánann að húni og gleðjast í garðinum heima” segir Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi. 

,,Hverfishátíðirnar tókust með eindæmum vel í fyrra svo Lista og menningarráð bæjarins tók þá  ákvörðun um að vinna áfram með þær. Við vinnum hverfishátíðirnar í góðu samstarfi við Almannavarnir og lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og förum í einu og öllu eftir tilmælum þeirra. Við hvetjum bæjarbúa að fylgjast með vefsíðu og samfélagsmiðlum bæjarins, njóta þjóðhátíðardagsins saman og hafa gaman af,“ bætir Soffía við. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar