GKG Íslandsmeistarar 12 ára og yngri!

Íslandsmót golfklúbba 12 ára og yngri fór fram 3.-5. september og var keppt á þremur keppnisstöðum, hjá GK, GM og lokadaginn á Mýrinni í GKG.

Hvíta deildin: Íslandsmeistararar! E.r.f.v.: Úlfar Jónsson íþróttastjóri GKG, Benjamín Snær Valgarðsson, Kristinn Sturluson, Arnar Daði Svavarsson, Andrés Jón Davíðsson barna- og unglingaþjálfari GKG. F.r.f.v: Stefán Jökull Bragason, Arnar Heimir Gestsson, Björn Breki Halldórsson

GKG tefldi fram fjórum sveitum og voru krakkarnir sér og sínum algjörlega til sóma. Árangurinn var frábær, en uppskeran var Íslandsmeistaratitill í efstu deildinni (Hvítu), deildameistaratitlar í Gulu og Grænu deildinni og silfurverðlaun í þeirri Bláu.

Þetta var fimmta sinn sem þetta skemmtilega mót er haldið, en leikin var liðakeppni með Texas Scramble fyrirkomulagi, þar sem leikgleðin var allsráðandi. Alls var leikið í 5 deildum, samtals 22 lið og 110 keppendur. Óhætt er að segja að barna- og unglingastarf sé blómlegt í mörgum klúbbum.

Forsíðumynd: Græna deildin: Deildarmeistarar: Birna Grímsdóttir, Sara Björk Brynjólfsdóttir, Bríet Dóra Pétursdóttir, María Kristín Elísdóttir og Alda Ágústsdóttir

Fremst á mynd: Gula deildin: Deildarmeistarar Hanna Karen Ríkharðsdóttir, Ríkey Sif Ríkharðsdóttir, Eva Fanney Matthíasdóttir, Embla Hrönn Hallsdóttir og Viktoría Fenger
Bláa deildin: Silfurverðlaun. Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, Andrés þjálfari, Matthías Jörvi Jensson, Valdimar Jaki Jensson, Alex Bjarki Þórisson, Emil Máni Lúðvíksson, Ágúst Högni Þorsteinsson, Úlfar íþróttastjóri (mótsstjóri)

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins