GKG andinn sveif yfir vötnum

Boli -Opnunarmót GKG fór fram við kjöraðstæður um miðjan maí. Veðrið var með besta móti, völlurinn frábær og umfram allt GKG andinn sveif yfir vötnum.

Í kvennaflokki sigraði Sigríður Geirsdóttir punktakeppnina á 45 punktum, Katrín Hörn var í öðru sæti á 44 punktum og í þriðja sæti var Ragnheiður H. Ragnarsdóttir. Katrín Hörn, sem er 17 ára gömul gerði sér lítið fyrir og vann höggleikinn á 77 höggum, tveimur höggum betri en reynsluboltinn María Málfríður sem spilaði völlinn á 79 höggum. Katrín lét ekki þar við látið heldur krækti sér í nándarverðlaun á 11. holu, var eingöngu 71 cm frá holunni auk þess að vera í öðru sæti í punktakeppninni, glæsilegur árangur hjá þessum efnilega kylfingi.
Í karlaflokki sigraði Brjánn Árnason punktakeppnina á 43 punktum, Magnús Gautur Gíslason var í öðru sæti á 42 puntum og Bjarki Már Magnússon var á 40 punktum. Magnús Gautur vann jafnframt höggleikinn á 73 höggum.

Kampakátir siguvegarar á fyrsta opna golfmóti sumarsins hjá GKG

Hér að neðan eru verðlaunahafar listaðir upp:

Punktakeppni með forgjöf.
Verðlaun:Sæti: Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði í eina nótt á Íslandshóteli að eigin vali. Gjafabréf í Skylagoon fyrir tvo. Glaðningur frá Ölgerðinni

Sæti: Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði í eina nótt á Íslandshóteli að eigin vali. Glaðningur frá Ölgerðinni

Sæti: – Gjafabréf í Skylagoon fyrir tvo. Glaðningur frá Ölgerðinni. Gjafabréf í Golfherma GKG
Konur:

1.Sigríður Geirsdóttir 45 punktar

2.Katrín Hörn Daníelsdóttir 44 punktar

3.Ragnheiður H Ragnarsdóttir 42 punktar

Karlar:

  1. Brjánn Árnason 43 punktar
  2. Magnús Gautur Gíslason 42 punktar
  3. Bjarki Már Magnússon 40 punktar

Höggleikur

Verðlaun:

  1. Sæti: 30 þúsund króna inneign hjá GKG, 10 þúsund króna gjafabréf í Matarkjallarann, 10 þúsund króna inneign hjá Olís
    Karlar: 1. sæti: Magnús Gautur Gíslason 73 högg
    Konur: 2. sæti: Katrín Hörn Daníelsdóttir 77 högg. Sæti 1. „Iss ég para bara næstu“ verðlaunin: Jón Þór Friðgeirsson

Nándarverðlaun veitt á öllum par 3 holum vallarins.

Hola 17: gjafabréf í goflherma GKG og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Hallgrímur Smári, 45.5cm

Hola 13: gjafabréf í goflherma GKG og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Jón Gunnarsson, 1,11m

Hola 11: Gjafabréf í Skylagoon fyrir 2 og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Katrín Hörn, 71cm

Hola 9: Gjafabréf í Skylagoon fyrir 2 og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Eysteinn Marvinsson, 2,12m

Hola 4: Gjafabréf í Skylagoon fyrir 2 og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Jóhanna Hjartardóttir, 2,47m

Hola 2: Gjafabréf í Skylagoon fyrir 2 og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn Kylfings: Jóhanna Ríkey, 1,38 m

Lengsta upphafshögg á 12:

Kristófer Eyleifsson og Dagur Þórhallsson (sama lengd og í sama holli)

Næstur á tveimur á 18.

Sigurður Kristinn Egilsson … á tveimur, þ.e. 0 cm frá holu

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar