Yndisleg ferð til Tenerife með Lóló fyrir 60 og eldri – Ertu með?

Dagana 6. til 20. nóvember nk. býður Úrval Útsýn upp á síðbúna haustferð fyrir 60 ára+ til Tenerife þar sem boðið verður upp á sésniðna dagskrá fyrir Úrvalsfólk, en Tenerife hefur upp á allt að bjóða sem bestu sólaráfangastaðir geta státað af, veðursæld og einstaka náttúrufergurð. Það kannast sjálfsagt flestir við farastjóra ferðarinnar, en það er Garðbæingurinn Lóló sem mun halda vel utan um hópinn og stýra ferðinni.
Á meðan dvöl stendur mun Lóló halda úti fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá eins og leikfimi, göngutúrum og félagsvist ásamt öðrum skemmtilegum uppákomum. Þessar ferðir hafa oft selst fljótt upp enda er Tenerife þekkt fyrir einstaka veðursæld, hreinar strendur og fjölbreytta afþreyingu fyrir Úrvalsfólk.

Lóló hefur langa reynslu sem fararstjóri og því eru ferðalangar í góðum höndum hjá henni.

Lóló er búin að vera með fjölmarga hópa á Tenerife og allir hafa farið alsælir heim

Þetta er spennandi ferð sem þú ert að fara í til Tenerife í nóvember og það verður nóg um að vera enda ýmislegt í boði? ,,Já, Tenerife er yndisleg eyja sem gott er að dvelja á, dásamlegt loftslag með þessari góðu hafgolu. Ég er búin að vera með fjölmarga hópa þarna og allir hafa farið alsælir heim. Ég býð upp á alls kyns hreyfingu og skemmtilegheit,” segir Lóló.

Og það eru tvær skipulagðar skoðunarferðir í boði fyrir þá sem vilja, er margt áhugavert að skoða á Tenerife? ,,Já, það er margt að sjá, en við ætlum að bjóða upp á tvær skemmtilegar ferðir fyrir þá sem vilja. Annars vegar er það hringferð í kringum Tenerife eyjuna sem er mjög vinsæl og hins vegar verður siglt til og boðið upp á dagsferð um náttúruperluna La Gomera eyjuna sem er mjög spennandi ferð.”

En svona yfir höfuð þá er dásamlegt að dvelja á Tenerife og ekki verra að geta valið úr viðburðum sem hægt er að taka þátt í? ,,Það er nóg í boði alla daga, hreyfing, sund minigolf o.fl. en það er hvergi skyldumæting, fólk er jú í fríi og slökun og hvíld er stærsti parturinn af því,” segir hún brosandi.

En hvernig er aðstaðan og hótelið sem þið bjóðið upp á? ,,Við dveljum á La Siesta hótelinu sem er mjög gott 4ra stjörnu hótel fyrir miðju á amerísku ströndinni. Hótelið býður upp á frábæran aðbúnað að öllu leyti. Það eru aðeins 200 metrar niður að strönd og mjög stutt í alla þjónustu, veitingastaði, skemmtistaði og verslanir.”

Og þetta er ferð fyrir 60 ára og eldri, er þetta ekki skemmilegasti hópurinn til að ferðast með? ,, Að halda utan um hópa 60+ eru forréttindi. Þetta er yndislegt fólk sem er komið til að njóta þess sem í boði er, en fyrst og fremst að njóta þessa hlýja loftlags og birtunnar.”

Svo ferðalangar munu snúa heim endurnærðir eftir skemmtilega dvöl og góðan félagsskap? ,,Já, heldur betur. Fólk kemur heim endurnært kátt og glatt og hlaðið af nýrri orku, tilbúið að takast á við daglega rútínu heima á Íslandi,” segir Lóló að lokum en allar nánari upplýsingar er hægt að finna á uu.is

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar