Við vinnum fyrir ykkur

Eftir sveitarstjórnarkosningar 2018 fengum við í Garðabæjarlistanum þrjá fulltrúa kjörna á móti átta fulltrúum Sjálfstæðisflokks. Við fengum rétt tæplega 30% atkvæða, sem telst frábær árangur hjá framboði sem var að koma saman í fyrsta sinn. Aðrir flokkar, Miðflokkur og Framsókn, náðu ekki inn manni og dóu því þau atkvæði sem þeir flokkar fengu. 

Eftir kosningar var farið í að skipa nefndir en þá kemur í ljós að við eigum aðeins rétt á einum fulltrúa á móti fjórum. Það þótti okkur ósanngjarnt í ljósi þess að við fengum þriðjung atkvæða. Hvar er lýðræðið í því? Í bæjarráði áttum við einn af fimm fulltrúum og að auki var ráðinn bæjarstjóri sem var á lista meirihlutans. Þrátt fyrir þetta tókst okkur að halda meirihlutanum á tánum og gott betur en það. Við þurftum að sjálfsögðu að leggja á okkur mikla vinnu til þess og það var virkilega skemmtilegt. Við náðum ótrúlegum árangri, en betur má ef duga skal. 

Við lögðum fram margar tillögur í bæjarstjórn, tillögur sem sköpuðu umræður, einstaka voru samþykktar og öðrum vísað í nefndir og enn aðrar sem voru teknar og þvegnar af meirihlutanum áður en þær birtust í bæjarstjórn á ný. 

Hér eru brot af  þeim málum sem við höfum lagt til og talað fyrir í bæjarstjórn á þessu tímabili:

• Hækkun hvatapeninga 
• Hvatapeningar nýtist 4-5 ára börnum
• Systkina- og fjölgreinaafsláttur
• Ungmennahús
• Sundkort til ungmenna
• Gjaldfrjáls morgunhressing í grunnskólum
• Ávextir og grænmeti í boði í nestistíma grunnskóla
• Halda aftur af hækkunum á gjöldum á börn
• Tekjutenging gjalda
• Heilsuefling eldri borgara
• Aðhald í umhverfismálum
• Efling tónlistarskólans
• Útboð á endurskoðun ársreikninga

Við munum halda áfram að tala fyrir frekari lífsgæðum bæjarbúa, því það sem gerir þennan minnihluta merkilegan er sú elja og þrautseigja sem okkar fólk hefur sýnt þrátt fyrir mikið valda ójafnvægi í bæjarstjórn og nefndum. Í störfum okkar á síðasta kjörtímabili er margt sem við höfum áorkað, eftir okkar fólk liggur fjöldi bókana og tillagna sem hafa styrkt lífsgæði okkar allra í bænum. 

Okkar rödd í bæjarstjórn hefur haft mikilvægt vægi og með okkar aðhaldi hefur málefnum verið haldið á lofti sem annars hefðu mögulega gleymst ofan í skúffu eða týnst á milli lína í 100 loforða bæklingi Sjálfstæðisflokksins frá því fyrir seinustu kosningar. Fleiri raddir þurfa að heyrast og við höfum metnað fyrir því að gera það áfram. Við vonumst til að fá ykkar stuðning til að gera enn betur á næsta kjörtímabili.

Setjum X við G fyrir okkar samfélag!

Harpa Þorsteinsdóttir og Ingvar Arnarson eru bæjarfulltrúar og skipa 2. og 3. sæti Garðabæjarlistans, X-G. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar