Verðlaunaður ljóðaslammari fræddi krakkana um fyrirbærið, ljóðaslamm

Á dögunum komu 9. bekkingar úr Garðaskóla í Bókasafn Garðabæjar til þess að kynna sér ljóðaslamm. Það var verðlaunaður ljóðaslammari, Jón Magnús Arnarsson, sem fræddi krakkana um þetta fyrirbæri sem er vinsæl keppnisgrein úti í heimi og hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi á síðustu árum. Ljóðaslamm gengur út á flutning á ljóði þar sem framkoman skiptir ekki síður máli en innihaldið og getur falið í sér leikræna tilburði, tónlist, myndlist eða dans. Jón Magnús var ánægður með nemendur Garðaskóla sem dældu ljóðunum óhrædd á blað. Hann segir að stefnt sé að því að efla keppni í ljóðaslammi á Íslandi og hver veit nema Garðbæingar muni skara fram úr í þeirri íþrótt í framtíðinni.

Á dögunum komu 9. bekkingar úr Garðaskóla í Bókasafn Garðabæjar til þess að kynna sér ljóðaslamm. Það var verðlaunaður ljóðaslammari, Jón Magnús Arnarsson, sem fræddi krakkana um þetta fyrirbæri sem er vinsæl keppnisgrein úti í heimi og hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi á síðustu árum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar