Umfjöllun um málefni hjóna og frásagnir af ofbeldi af þeirra hálfu, meðan þau ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratugnum hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarna daga.
Umrædd hjón starfræktu leikskóla og voru dagforeldrar í Garðabæ um tíma á árunum 1998-2015.
Í ljósi þess sem fram hefur komið er vinna hafin við að afla nánari upplýsinga um störf þeirra sem dagforeldra og um leikskólareksturinn sem fram fór í Garðabæ.
Garðabær lítur málið afar alvarlegum augum og mun einnig skoða með hvaða hætti má kalla til hlutlausan utanaðkomandi aðila til að gera úttekt á þeirri starfsemi sem fram fór innan leikskóla og í daggæslu sem umrædd hjón störfuðu við.
Hlutaðeigandi aðilum, s.s. foreldrum eða börnum sem voru í leikskóla eða í daggæslu hjá þeim hjónum í Garðabæ, er velkomið að hafa samband við bæjarskrifstofur Garðabæjar vegna málsins í s. 525 8500 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected] með fyrirspurnum, ábendingum eða óskum um samtal og/eða ráðgjöf.