Útsvarshlutfall áfram 13,7%

Frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2022 var lagt fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar 4. nóvember 2021. Gert er ráð fyrir að síðari umræða og afgreiðsla áætlunarinnar verði í bæjarstjórn Garðabæjar 2. desember 2021. Samhliða áætlun næsta árs er jafnframt lögð fram þriggja ára áætlun fyrir árin 2023, 2024 og 2025.

Samkvæmt framlagðri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að rekstrarafgangur A-hluta bæjarsjóðs verði neikvæður um 463 m.kr. en jákvæð rekstrarniðurstaða samstæðureiknings um 49 m.kr. Veltufé frá rekstri er áætlað að verði 1.337 m.kr. hjá A sjóði og 2.011 m.kr. í samstæðureikningi. Framlegð er áætluð 10 %.

Sterk fjárhagsstaða bæjarins og hóflegar skuldir

Fjárhagsstaða Garðabæjar er sterk, skuldir eru hóflegar og langt undir viðmiðunarmörkum samkvæmt 2. tl. 2. mgr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga en þar er mælt fyrir um að skuldir megi ekki vera hærri en sem nemur 150% af reglulegum tekjum. Skuldaviðmið er áætlað að verði 90,3%.
Í forsendum fyrir fjárhagsáætlun Garðabæjar er gert ráð fyrir að útsvarshlutfall verði áfram 13,7 % sem er það lægsta sem þekkist meðal stærri sveitarfélaga landsins. Jafnframt verði álögum á íbúa haldið eins lágum og kostur er, skuldahlutfall verði svipað og undanfarin ár, þjónusta við bæjarbúa verði eins og best verður á kosið og ekki verði dregið úr grunnþjónustu vegna samdráttar skatttekna. Gert er ráð fyrir lækkun álagningarprósentu á fasteignaskatti vegna mikillar hækkunar fasteignamats.

Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ

Íbúafjöldi yfir 18 þúsund

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Garðabæ á undanförnum árum og íbúafjöldi fór yfir 18 þúsund á árinu 2021. Áfram er gert ráð fyrir mikilli uppbyggingu með framboði lóða fyrir íbúðahúsnæði og atvinnuhúsnæði t.d. í Vífilsstaðalandi, Hnoðraholti, Urriðaholti og Álftanesi.

Framkvæmt fyrir 4.168 m.kr á næsta ári þar af 1.700 m.kr í Urriðaholti

Á árinu 2022 er gert ráð fyrir framkvæmdum að fjárhæð 4.168 m.kr.. Stærstu framkvæmdirnar á árinu 2022 verða í Urriðaholti þar sem byrjað verður á byggingu næsta áfanga Urriðaholtsskóla (900 m.kr) og nýjum leikskóla (800 m.kr). Einnig er samkvæmt framkvæmdaáætlun gert ráð fyrir að byggja búsetukjarna fyrir fatlað fólk, endurbæta skólalóðir, skólahúsnæði, opin leiksvæði og íþróttavelli. Til gatnagerðar, hljóðvistar og umferðarmála er áætlað að verja um 1,260 m.kr.

Óvissuþættir á næsta ári

Á milli umræðna gefst bæjarfulltrúum kostur á að rýna áætlunina og koma með ábendingar og breytingartillögur og einnig verða ábendingar bæjarbúa um fjárhagsáætlunina teknar til skoðunar.

Í framsögu Gunnars Einarssonar, bæjarstjóra Garðabæjar, á fundi bæjarstjórnar með fjárhagsáætlunarfrumvarpinu kom fram að enn ríkir nokkur óvissa um framvindu efnahagsmála og um áramót eru kjarasamningar lausir við ýmsar stéttir, s.s. kennara, sem getur haft áhrif á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Þá er óvíst hvernig ríkið ætlar að standa við verkefni sem gert er ráð fyrir að ríki og sveitarfélög sinni saman og sem tilgreind eru í samkomulagi sem var gert við Samband íslenskra sveitarfélaga um afkomu og efnahag árin 2021-2025.

Á vef Garðabæjar, gardabaer.is, er hægt að kynna sér frumvarp um fjárhagsáætlun sem var lagt fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn ásamt greinargerð um fjárhagsáætlun.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar