Unnu 9 Íslandsmeistaratitla af 15 og tvenn silfurverðlaun

Á leik Stjörnunnar gegn Þór Þorlákshöfn í 4-liða úrslutum Domino´s deildar í körfuknattleik í gær var fagnað í hálfleik þeim sögulega árangri Stjörnunnar að vinna níu Íslandsmeistaratitla af fimmtán í yngri flokkunum í körfuknattleik keppnistímabilið 2020/2021 auk þess sem tvenn silfurverðlaun komu í hlut Stjörnunnar. Magnaður árangur að Stjarnan hafi komist í 11 úrslitaleiki af 15 og unnið 9 þeirra.

Íslandsmeistararnir ásamt Sigurgeiri Guðlaugssyni formanni Stjörnunnar, Ásu Ingu Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóra Stjörnunnar, Hilmari Júlíussyni formanni körfuknattleiksdeildar, Gunnari Einarssyni bæjararstjóra og Björgu Fenger formanni íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar. Mynd Hörður Garðarsson

Sigur vannst í flokki mb10 kk og kvk, mb11 kvk, 7. flokki kk og kvk (fyrsti kvennatitill Stjörnunnar), 8. flokki kvk, 9. flokki kk og kvk og að lokum unglingaflokki þar sem sameiginlegt lið Stjörnunnar og Álftaness lék. Til viðbótar fékk Stjarnan svo silfur í 8. og 10. flokki drengja.

Glæsilegur hópur sigurvegara mætti út á völl í hálfleik og var tekin mynd af hópnum þar sem sjá má glaða Íslandsmeistara, fjölmarga bikara, Sigurgeir Guðlaugsson formann Stjörnunnar, Ásu Ingu Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóra Stjörnunnar, Hilmar Júlíusson formann körfuknattleiksdeildar auk Gunnars Einarssonar bæjararstjóra og Björgu Fenger formanns íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.

Starfinu sinnt af miklum metnaði

„Árangur í yngri flokkum næst ekki á einni nóttu og hefur verið unnið mikið og gott starf í félaginu á undanförnum árum við að fjölga iðkendum og efla starfið. Mikill metnaður hefur verið lagður í að úrvalsþjálfarar þjálfi alla flokka og því að starfinu sé sinnt af miklum metnaði.“ sagði Hlynur Bæringsson yfirþjálfari yngri flokka körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar. 

Íslandsmeistararnir ganga inn á völlinn í Mathús Garðabæjarhöllinni í hálfleik í leik Stjörnunnar og Þórs Þorlákshafnar í gær.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins