Tónlistarnæring á hádegistónleikum

Þær Lilja Guðmundsdóttir sópransöngkona og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari næra gesti á hádegistónleikum í sal Tónlistarskóla Garðabæjar sem hefjast kl. 12:15 þann 6. apríl. Þær stöllur flytja lög eftir Jóhann Helgason, Jóhann G. Jóhannsson, Hauk Tómason, Schubert, Grieg og fleiri meistara. Það er menningar- og safnanefnd Garðabæjar sem stendur fyrir tónleikaröðinni í samstarfi við Tónlistarskóla Garðabæjar. Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Ólöf Breiðfjörð menningarfulltrúi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar