Tónleikar í Hörpuhorni

Tveir kórar úr Garðabæ, Kór Vídalínskirkju og Garðakórinn sungu í tónlistarhúsinu Hörpu, Hörpuhorni, í Reykjavík þar síðasta sunnudag. Tónleikarnir voru hluti af tónleikaröð Félags íslenskra kórstjóra, FÍK. Kór Vídalíns- kirkju söng fyrst nokkur lög úr efnisskrá sinni í væntanlegri tónleikaferð til Ungverjalands en síðan bættist Garðakórinn við í tveim lögum og söng loks seinasta hluta efnisskrárinnar.

Stjórnandi og undirleikari beggja kóranna er Jóhann Baldvinsson.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar