Tinna Rúnarsdóttir dúxaði í FG

Brautskráning fór fram um síðastliðna helgi í Fjölbrautaskólanum Garðabæ við athöfn sem var nokkurn veginn eðlileg, miðað ástandið í samfélaginu undanfarnar vikur, en hátíðarsalur skólans, Urðarbrunnur, var setinn samkvæmt gildandi sóttvarnarreglum.

Dúx FG! Tinna ásamt Kristni Þorsteinssyni skólameistara FG

Eva og Rakel nörtuðu í hælana á Tinnu

Að þessu sinni voru það þrjár stúlkur sem sköruðu fram úr og dúx skólans var Tinna Rúnarsdóttir með 9.1 í meðaleinkunn af Listnámsbraut. Eva Bryndís Ágústsdóttir, einnig af Listnámsbraut, og Rakel Rebekka Sigurðardóttir af Náttúrufræðibraut komu svo fast á eftir Tinnu, með 9.0 í meðaleinkunn.

Af  þeim 95 sem útskrifuðust voru 26 af listnámsbrautum, 17 af náttúrufræðibraut, 13 af félagsvísindabraut, 12 af hönnunar og markaðsbraut, 11 af íþróttabraut, 8 af  viðskiptabrautum, 4 af alþjóðabrautum, 3 af sérnámsbraut og einn var með lokapróf af framhaldsskólabraut.   

Rakel, Eva og Snjólaug Bjarnadóttir aðstoðarskólameistar

Fjórða ,,kóvid-útskriftin“

Um var að ræða fjórðu ,,kóvid-útskriftina“ en vonandi þá síðustu eins og Kristinn Þorsteinsson, skólameistari kom inn á í ræðu sinni. Nám í FG er samkvæmt þriggja anna kerfi og útskýrir það aukinn fjölda útskrifta.

Fjöldi nemenda fékk verðlaun fyrir góðan námsárangur, mætingu og fleira og sérstök Samfélagsverðlaun FG hlutu þær Eva Bryndís Ágústsdóttir og Anna Sóley Stefánsdóttir. Þessi verðlaun fá nemendur sem eru til mikillar fyrirmyndar í skólastarfinu.

Myndirnar tók Gunnar H. Ársælsson

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins