Það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig!

„Garðbæingurinn okkar“ verður útnefndur í fyrsta sinn þann 19. janúar 2024, í Sveinatungu á Garðatorgi klukkan 14.

Öll getum við haft áhrif á nærumhverfi okkar

Með því að útnefna „Garðbæinginn okkar“ erum við að þakka fyrir það sem vel er gert, þakka einstaklingi fyrir sitt framlag, þeim sem eru til fyrirmyndar á einhvern hátt og minna okkur á að við getum öll haft áhrif.

Til greina koma Garðbæingar sem hér búa en einnig það fólk sem starfar eða dvelur í bænum okkar til lengri og skemmri tíma og hefur jákvæð áhrif bæjarbraginn. Gott fólk finnum við út og suður í bænum okkar, fólk í framlínunni sem hefur jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt og gerir daginn okkar betri.

Dómnefnd velur „Garðbæinginn okkar 2023“ úr innsendum tillögum, en hægt var að senda inn ábendingar til 5. janúar sl., og mun viðkomandi sem hlýtur nafnbótina fá árskort í sundlaugar Garðabæjar, árskort í Hönnunarsafn Íslands og þriggja daga gjafakort i Bláfjöll.

Það verður spennandi að sjá á föstudaginn hver verður Garðbæingurinn okkar árið 2023

  • Það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig er texti úr samnefndu lagi eftir Rúnar Júlíusson. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins