Sunneva Karen fékk Sæskrímsli

Sunneva Karen Geirsdóttir, 6 ára nemandi í Álftanesskóla var dregin út í Sumarlestri Bókasafns Garðabæjar föstudaginn 24. júní.  Sunneva las bókina Tumi ætlar út eftir Gunillu Wolde og setti umsögn í lukkukassann. Í verðlaun fékk Sunneva bókina Þín eigin saga: Sæskrímsli eftir Ævar Þór Benediktsson. Sunneva les mjög mikið, jafnvel margar bækur á viku. Sunneva hafði skilað inn þó nokkrum miðum í lukkukassann og átti því sannarlega skilið að vera dregin út. Sunnevu finnst Tumabækurnar  vera mjög skemmtilegar og áhugaverðar! Sunneva er nefnilega að æfa lesturinn og þjálfa sig fyrir þyngri bækur. Sunneva ætlar að halda áfram að vera dugleg að lesa í allt sumar, jafnvel á ferðalögum og taka þátt í Sumarlestrinum. Við óskum Sunnevu innilega til hamingju.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar