Stjörnuhlaupið á laugardaginn

Stjörnuhlaupið fer fram síðdegis laugardaginn 21. maí og líkt og í fyrra verður hlaupið ræst kl. 16:00. Boðið verður upp á tvær hlaupaleiðir, annars vegar 10 km hring og hins vegar 4 km hring (ræst stuttu eftir 10 km hlaupið).

Hlaupið hefur nú eignast nýja stórglæsilega heimahöfn – Miðgarð sem er hið nýja glæsilega fjölnota íþróttahús Garðbæinga. Báðar vegalengdir verða ræstar frá Miðgarði og enda þar. Aðstaða fyrir þátttakendur er eins góð og hugsast getur. Gott aðgengi að salernum, hægt að geyma verðmæti á öruggum stað meðan hlaupið er, upphitun fyrir hlaup og teygjur eftir hlaup við kjöraðstæður. Fyrir þá sem það vilja er einnig hægt að skola af sér eftir hlaup.

,,Við erum á því að Stjörnuhlaupið henti fjölskyldum afskaplega vel. Bæði er val um tvær vegalengdir sem og þetta fyrirkomulag að halda hlaupinu á göngustígum. Það eiga því flest allir að geta fundið braut sem hentar þeim,“ segir Halldór Þorkellsson hjá Hlaupahópi Stjörnunnar og bætir við: ,,En þetta verður engu að síður keppnishlaup fyrir þá sem vilja og tímataka. Í rásnúmerum allra hlaupara er flaga þannig að allir fá skráðan keppnistíma. Brautin er stórskemmtilega fyrir þá sem vilja taka vel á því.“

Líkt og í fyrra fer hlaupið svo til alfarið fram á göngustígum Garðabæjar. Allir velkomnir!

Skráning í hlaupið fer fram á hlaup.is. ,,Við munum síðan gefa fólki kost á að skrá sig í hlaupið við afhendingu hlaupagagna daginn fyrir hlaup sem og á hlaupadegi,“ segir Halldór.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar