Stjörnugerð í Hönnunarsafninu

Myndlistarkonan Jóhanna Ásgeirsdóttir leiðir smiðju í Hönnunarsafninu sunnudaginn 4. desember frá klukkan 13 en viðfangsefnið er jólastjörnugerð í anda Einars Þorsteins. Smiðjan er ætluð allri fjölskyldunni og verður eflaust gaman að sjá fallegar stjörnur í gluggum Garðbæinga að lokinni smiðjunni. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar