Steinunn Bergmann nýr formaður – Ný stjórn kosin á aðalfundi Kvenfélags Garðabæjar

Aðalfundur Kvenfélags Garðabæjar var haldinn á Garðaholti 4. febrúar sl. þar sem kosin var ný stjórn, Steinunn Bergmann formaður, Sonja Margrét Halldórsdóttir varaformaður, Svava Gústafsdóttir ritari, Sigrún Matthea Sigvaldadóttir gjaldkeri, Elísabet Þ. A. Maack Pétursdóttir meðstjórnandi, Ellen Sigurðardóttir og Þóra Björk Kristjánsdóttir varastjórn. Góð mæting var á fundinn þrátt fyrir gular veðurviðvaranir. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa var kaffihlaðborð í boði hóps 5. Þá gengu tvær nýjar konur til liðs við félagið, þær Freyja Bergsveinsdóttir og Sigríður Jóhannsdóttir.

Mikilvægt samfélagslegt hlutverk

Kvenfélag Garðabæjar var stofnað 8. mars 1953 og unnu stofnendur félagsins mikið og óeigingjarnt starf við endurreisn Garðakirkju og viðbyggingu Garðaholts, sem hefur verið aðstaða félagsins frá stofnun þess. Félagið gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu en félagskonur sjá til dæmis um fermingarkirtla fyrir börnin okkar og kaffihlaðborð á sautjánda júní. Félagfundir eru á Garðaholti fyrsta þriðjudag í október til desember og febrúar til maí, Á félagsfundum er lögð áhersla á fróðleik og skemmtun í bland og höfum við fengið marga góða gesti í gegnum árin, nánari upplýsingar á kvengb.is Kvenfélag Garðabæjar – Heim Næsti fundur er 4. mars og eru allar konur í Garðabæ velkomnar.

Halldóra Björk Jónsdóttir fráfarandi formaður, Freyja Bergsveinsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir og Steinunn Bergmann formaður

Framfarir í krafti kvenna

Félagið er aðili að Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu og Kvenfélagasambandi Íslands (KÍ) sem stofnað var árið 1930 sem sameiningar og samstarfsvettvangur kvenfélaganna í landinu.  Innan KÍ starfa 135 kvenfélög í 17 héraðs- og svæðasamböndum með um 4000 félaga. Kvenfélög á Íslandi gegna mikilvægu starfi og hafa stuðlað að margvíslegum velferðarmálum í samfélaginu. Þar má nefna byggingu Landspítala snemma á síðustu öld og eru Hringskonur enn þá mikilvægur bakhjarl barnaspítalans. Flest framfaramál á Íslandi hafa verið unnin í krafti kvenna en með stofnun Barnavinafélagsins Sumargjafar árið 1924 hófst saga leikskólans á Íslandi og félagið hóf rekstur Fóstruskólans haustið 1946.

Kvenfélag Garðabæjar tók virkan þátt í söfnun Kvenfélagasambands Íslands (KÍ) í tilefni af 90 ára afmæli sambandsins Gjöf til allra kvenna á Íslandi sem hófst 1. febrúar 2020. Söfnuðust 30 milljónir til kaupa á hugbúnaði sem rafvæðir sjúkraskrárgögn sem tengjast fósturhjartsláttarritum og sónarniðurstöðum og vistar þau miðlægt. Með þessum hugbúnaði er mögulegt koma í veg fyrir að konur séu sendar jafnvel langan veg til frekari skoðunar. Nánari upplýsingar á vef KÍ kvenfelag.is Kvenfélagasambandi Íslands og kvenfélagskonum þakkað fyrir höfðinglega og kjarkaða gjöf.

Kaffihlaðborð kvenfélagsins eru engu lík

Forsíðumynd: Halldóra Björk Jónsdóttir fráfarandi formaður, Steinunn Bergmann formaður, Sigrún Matthea Sigvaldadóttir gjaldkeri, Þóra Björk Kristjánsdóttir og Ellen Sigurðardóttir varastjórn, Svava Gústavsdóttir ritari og Anna Bára Baldvinsdóttir fráfarandi stjórnarkona.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins