Sr. Matthildur ráðin í Garðaprestakalli

Sr. Matthildur Bjarnadóttir hefur verið ráðin til þjónustu í Garðaprestakalli, enBiskup Íslands auglýsti
nýlega eftir presti til þjónustu í Garðaprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi.

Tvær umsóknir bárust og var önnur þeirra frá sr. Matthildi Bjarnadóttur, sem var ráðinn eins og hefur Biskup Íslands staðfest ráðninguna.

Fréttaritari á kirkjan.is hafði samband við sr. Matthildi og spurði hana um nám hennar og fyrri störf sem Garðapósturinn fékk að birta. „Ég kláraði BA gráðu frá guðfræðideildinni árið 2012, en ákvað að halda ekki beint áfram heldur flytja með Daða eiginmanni mínum til Kaupmannahafnar þar sem ég stundaði nám í trúarbragðasögu við Kaupmannahafnarháskóla,” segir hún og heldur áfram: ,,Námið heitir the Religious Roots of Europe og snýst um samskipti hinna Abrahamísku trúarbragða í Evrópu og hvernig þau hafa haft áhrif á hvert annað í gegnum aldirnar. Árið 2016 fluttum við heim og ég hélt áfram með embættisnámið í HÍ sem ég kláraði árið 2020, tveimur börnum ríkari. Veturinn 2020-21 tók ég svo sálgæsludiplómuna hjá endurmenntun HÍ.
Alla mína menntaskóla- og háskólagöngu starfaði ég fyrir Þjóðkirkjuna og KFUM og KFUK í hinum ýmsu störfum,“ segir hún.

Garðasókn ekki nýr vinnustaður fyrir mér

En þú hefur verið starfandi við Garðasókn. Hvert hefur hlutverk þitt verið þar? ,,Já, það er rétt! Garðasókn er ekki nýr vinnustaður fyrir mér en allt frá árinu 2008 hef ég starfað í barna- og unglingastarfi hér,” segir hún. ,,Fyrst stýrði ég sunnudagaskólanum á Bessastöðum en tók svo að mér fleiri safnaðarliði og hef komið að uppbyggingu 6-9 ára starfsins, TTT og æskulýðsfélagsins síðustu ár. Að lokum tók ég að mér starf æskulýðsfulltrúa 2019 og var vígð sem æskulýðsprestur í október 2021 Í vetur hef ég síðan leyst af sr. Henning Emil Magnússon.”

Hver eru helstu áhugamál þín í safnaðarstarfinu? „Sá þáttur starfsins sem mér þykir hvað vænst um er sálgæsla ungmenna og starf mitt fyrir Örninn, minningar- og styrktarsjóð. Hann varð til árið 2018 og ég hef fengið að vera með í uppbyggingunni síðan þá og tók að mér verkefnastjórn félagsins árið 2020. Það er mér metnaðarmál að efla það starf og verða enn betri fagmanneskja í sálgæslu.
Með það markmið að leiðarljósi erum við t.d. að fara fimm sjálfboðaliðar úr Erninum á stóra rótgróna ráðstefnu um sorg barna í Bandaríkjunum í sumar til þess að afla okkur frekari þekkingar þaðan. Starf Arnarins hefur orðið til þess að mikið er leitað til okkar í Vídalínskirkju af starfsfólki leik- og grunnskóla eftir stuðningi í kjölfar áfalla og foreldrar í sókninni vita að hér eru bakhjarlar ef á þarf að halda þegar börn verða fyrir missi,” segir hún og heldur áfram: ,,Þar fyrir utan er hér blómlegt safnaðarstarf og mikil gleði. Mér finnst svo mikilvægt að hafa gott jafnvægi á milli gleði og sorgar í starfi. Það sem ég er einna spenntust fyrir er að halda áfram að vera samferða krökkunum í æskulýðsfélaginu sem eru að taka sín fyrstu skref sem ungleiðtogar. Það eru forréttindi að fá að sjá þau vaxa í því hlutverki og taka þátt í þessu mikilvæga uppeldi.“

Sr. Matthildur er gift Daða Guðjónssyni kennara og eiga þau saman tvö börn, Jónu Theresu sem er 7 ára og Ísak Bolla sem er 4 ára.

Auk þess má geta þess að foreldrar sr. Matthildar eru sr. Bjarni Karlsson og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir sóknarprestur í Garðaprestakalli og afi hennar og amma voru sr. Bolli Gústavsson og frú Matthildur Jónsdóttir fyrrum vígslubiskupshjón á Hólum í Hjaltadal.

Mynd: Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir og sr. Matthildur Bjarnadóttir

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar