Sóley Harðardóttir dúx FG

Brautskráning frá miðönn 2021-22 í Fjölbrautaskolanum í Garðabæ, fór fram í Urðarbrunni föstudaginn 4.mars síðastliðinn. 

Um var að ræða ,,eðlilega“ brautskráningu, en lítið hefur verið um slíkt vegna kóvid og var þetta því grímulaus brautskráning. 

Af  þeim 30 sem útskrifuðust voru átta af hönnunar og markaðsbraut,  sex af  viðskiptabrautum, af félagsvísinda, íþrótta, listnáms og náttúrufræðibraut, brautskráðust fjórir af hverri braut. 
Dúx á miðönn var Sóley Harðardóttir, af félagsvísindabraut, sem fékk bæði verðlaun í ensku og félagsvísindum. 

Soroptimistafélag Garðabæjar og Hafnarfjarðar veitti verðlaun fyrir framfarir og þrautseigju í námi og þau fékk Annika Singh Helgadóttir. 

Sérstök Samfélagsverðlaun FG fékk svo Björn Gabríel Björnsson, fyrir einstaka ljúfmennsku og jákvætt viðhorf, bæði til nemenda og kennara á sínum námsferli í FG. 

Sunna Dís Helgadóttir flutti ávarp nýstúdents og einnig fluttu nemendur tónlistaratriði. 
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ starfar eftir þriggja anna kerfi og eru nemendur skólans rúmlega 700. 

Á myndinni, sem Fríða Gylfadóttir tók, er dúx miðannar, Sóley Harðardóttir og Kristinn Þorsteinsson skólameistari FG ásamt öðrum brauðskráðum nemendum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar