Skringilegasta fjölbýli Garðabæjar hefur risið á Garðatorgi

Skringilegasta fjölbýli Garðabæjar hefur risið á Garðatorgi, en það er að finna á sýningunni Heimurinn Heima á Hönnunarsafni Íslands. Íbúðirnar í húsinu voru skapaðar af 4. bekkingum í grunnskólum Garðabæjar og afar smáir íbúar flytja inn í íbúðirnar, en sýningin er sett upp í tilefni af Barnamenningarhátíð í Garðabæ.

Allir 4. bekkingar í Garðabæ tóku þátt í smiðjum í tengslum við sýninguna „Hönnunarsafnið sem heimili“ sem nú stendur yfir í Hönnunarsafni Íslands. Hönnuðirnir Auður Ösp Guðmundsdóttir og Kristín María Sigþórsdóttir leiddu smiðjur með nemendum sem hvött voru til að hugsa með höndunum og setja sig í spor hönnuða og uppfinningafólks en saman gerðu þau heimili fyrir skáldaða einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn s.s. dansara og geimfara, bakar og gleðigjafa sem öll eiga það sameiginlegt að búa með ævintýralegum hópi gæludýra og safna aragrúa af ýmsu.

Sýningin er opin almenningi alla daga nema mánudaga frá 12-17 og er staðsett í sýningarrýminu Pallurinn á jarðhæð safnsins.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins