Sjáum mikil tækifæri í uppbyggingu á Vífilsstöðum – segir Almar sem hefur óskað eftir viðræðum við ríkisvaldið um framtíðaruppbyggingu á Vífilsstöðum

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, hefur sent erindi til ráðherranefnda um öldrunarþjónustu og málefni barna og ungmenna þar sem óskað er eftir viðræðum við ríkisvaldið um framtíðaruppbyggingu á Vífilsstöðum. Í erindinu er meðal annars bent á möguleika á nýtingu eigna á svæðinu fyrir hjúkrunarheimili og skyldar starfsemi. Jafnframt er lögð áhersla á að Garðabær hefur þegar skipulagt lóð í Vetrarmýri fyrir slíkt hjúkrunarheimili. 

Auk þess er ítrekaður vilji bæjarins til að hrinda í framkvæmd uppbyggingu meðferðarheimilis fyrir börn að Friðarvöllum 1, í samræmi við viljayfirlýsingu Velferðarráðuneytisins, Barnaverndarstofu og Garðabæjar. 
Garðabær kallar nú eftir fundum með ráðherranefndum og fulltrúum ríkisins til að ræða þessi mikilvægu málefni og tryggja framgang þeirra. Garðapósturinn heyrði í bæjarstjóranum.  

Flestar fasteignir á svæðinu eru enn í eigu ríkissjóðs

Af hverju leitar Garðabær til ríkisins um uppbyggingu á Vífilsstöðum núna?  ,,Við sjáum mikil tækifæri í uppbyggingu á Vífilsstöðum. Þar háttar þannig til að Garðabær keypti landið af ríkinu árið 2017, en flestar fasteignir á svæðinu eru enn í eigu ríkissjóðs. Það er þess vegna mikilvægt að hefja samtal við ríkið til að tryggja framtíðarnýtingu svæðisins með skýrri stefnu. Vífilsstaðir hafa mikið skipulagslegt og samfélagslegt gildi, og því viljum við vinna með ríkinu að farsælli lausn,“ segir hann.  

Þróa nýjar lausnir sem uppfylla þarfir íbúa

Hvernig gæti Garðabær nýtt eignirnar á Vífilsstöðum fyrir hjúkrunarþjónustu og hver eru næstu skref?  ,,Höfum í huga að Garðabær sinnir ekki heilbrigðisþjónustu, það er á borði ríkisins. Næstu skref felast í viðræðum við ríkið til að kanna mögulegar leiðir og forgangsröðun verkefna og svo sem ekki margt sem hægt er að ræða fyrr en þær viðræður fara vel af stað. En við erum t.d. opin fyrir því að þróa nýjar lausnir sem uppfylla þarfir íbúa og það gæti mögulega gerst á þessum sögufræga stað. Okkur þykir líka mikilvægt að hlúa áfram vel að þeirri skólastarfsemi sem er á svæðinu. Svo verður eflaust hugað að öðrum möguleikum líka.“ 

Þegar gert ráð fyrir hjúkrunarheimili í Vetrarmýri

Hver er staðan á hjúkrunarheimili í Vetrarmýri og tengingu þess við þróun Vífilsstaða?  ,,Við höfum þegar gert ráð fyrir hjúkrunarheimili í Vetrarmýri í skipulagi og erum þannig séð tilbúin til að hefja þá uppbyggingu. Verkefnið gæti fallið vel að þróun á Vífilsstöðum og skapað sterkt heildarsamhengi í öldrunarþjónustu innan sveitarfélagsins,“ segir Almar. 

Átakanlegt að fylgjast með vandræðagangi málsins í stjórnarráðinu

Og varðandi meðferðarheimili fyrir börn að Friðarvöllum 1 sem hafa verið töluvert í umræðunni að undanförnu – hvaða skref hafa verið tekin og hver eru næstu?  ,,Garðabær hefur lengi haft vilja til að koma þessu verkefni af stað í samstarfi við ríkið. Það hefur verið átakanlegt að fylgjast með vandræðagangi málsins í stjórnarráðinu. Við höfum fyrir löngu klárað skipulagið og skilgreint lóðina. Samtöl um málið döguðu eiginlega upp í stjórnarráðinu, en við höfðum óskað eftir samtölum vegna kostnaðar við gatnagerð en það liggur fyrir að hann er hærri en sem nemur hefðbundnum gatnagerðargjöldum. Þetta er frekar einfalt tæknilegt mál, sem við töldum auðleysanlegt enda er það aðkallandi. Nú er mikilvægt að tryggja framgang verkefnisins með því að fylgja eftir viljayfirlýsingu og það er ríkisins að taka nauðsynlegar ákvarðanir. Ef þau vilja ekki nýta þann góða undirbúning sem liggur í málinu þá væri betra að heyra það sem fyrst,“ segir hann. 

Hafa borist viðbrögð frá ráðherranefndum eða ráðherrum eftir að erindið var sent?  ,,Við bíðum enn eftir formlegum viðbrögðum, þessi mál eru brýn, en við viljum eiga góð samskipti við ríkisvaldið um næstu skref, hér eftir sem hingað til.“  

Verkefnin snerta bæði öldrunarþjónustu og velferð barna

Hversu mikilvægt er að þessi verkefni komist af stað sem fyrst?  ,,Þetta eru stór og samfélagslega mikilvæg verkefni sem snerta bæði öldrunarþjónustu og velferð barna. Með skýrri stefnu og framgangi getum við tryggt betri þjónustu og byggt upp betri innviði til framtíðar,“ segir Almar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins