Sex Stjörnustúlkur í 12 manna landsliðshópi U18 í körfubolta

Á morgun föstudag 2. ágúst er komið að því fyrir U18 ára stúlkna landsliðið í körfubolta að hefja leik í B-deild U18 EuroBasket yngri landsliða, en í tólf manna landsliðshópi eru hvorki fleiri né færri en sex Stjörnustúlkur.

U18 stúlkna er þannig skipað

Bára Björk Óladóttir – Stjarnan

Elísabet Ólafsdóttir – Stjarnan

Fanney María Freysdóttir – Stjarnan

Heiðrún Hlynsdóttir – Stjarnan

Ísold Sævarsdóttir – Stjarnan

Kolbrún María Ármannsdóttir – Stjarnan

Fjóla Gerður Gunnarsdóttir – KR

Gréta Björg Melsted – Aþena

Hanna Gróa Halldórsdóttir – Keflavík

Anna Margrét Hermannsdóttir – KR

Anna María Magnúsdóttir – KR

Jóhanna Ýr Ágústsdóttir – Þór Þorlákshöfn

Mótið fram fer í Ploiesti í Rúmeníu og mætir Ísland Slóvakíu í fyrsta leik kl.15:30 að íslenskum tíma. Mótinu lýkur sunnudaginn 11. ágúst.

18 þjóðir taka þátt í B-deildinni í fjórum riðlum, stelpurnar okkar eru í riðli með Tékklandi, Slóvakíu, og Austurríki. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1-8 og 9-18. 41 þjóð tekur þátt í U18 EuroBasket stúlkna , 16 þjóðir er í A-deild, 18 þjóðir í B-deild og 7 þjóðir í C-deild.

„Við erum öll virikilega spennt fyrir komandi móti og undirbúningurinn búinn að vera mjög góður. Mikill stígandi er búinn að vera í liðinu síðan við komum heim af NM en það mót gaf okkur rosalega mikið til að sjá hvað við þyrftum að vinna sem helst í. Ljóst er að verkefnið verður strax mjög krefjandi þar sem við erum með mjög góðum liðum í riðli en ef stemmingin er rétt og allar með hausinn rétt skrúfaðan á tel ég okkur eiga góða möguleiki á að komast upp úr riðlunum og berjast á toppnum,“ segir Halldór Karl Þórisson þjálfari liðsins og bætir við: ,,Ein breyting er á liðinu en við fáum inn Ísold sem hefur verið fyrriparts sumarsins að keppa í frjálsum íþróttum, hún kemur í staðinn fyrir Ólöfu inn í hópinn. Ég hvet alla til að fylgjast með þessu liðinu á EM því það er alveg órúlega gaman að fylgjast með þeim spila körfubolta, ákefð og dugnaður er það helsta sem einkennir þennan hóp.“

Hægt er að sjá allt um mótið, dagskrá leikja, riðla og stöðu, lifandi tölfræði og opið beint streymi frá öllum leikjum á heimasíðu FIBA U18 EuroBasket B-division

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar