Seinni þakkardagur vinaliða

Í Flataskóla starfa vinaliðar en hlutverk þeirra er að stýra uppbyggilegri afþreyingu á skólalóðinni í frímínútum. Vinaliðar eru valdir úr hópi nemenda á miðstigi og sinna hlutverkinu í tiltekinn tíma og uppskera að því loknu laun erfiðisins þegar þakkardagar eru haldnir sem er að jafnaði tvisvar yfir skólaárið.  Síðari þakkardagur vinaliða hjá Flataskóla var fyrir skólalok og þá gerðu vinaliðar sér glaðan dag ásamt verkefnisstjórum. Hópurinn skellti sér í bíó og gæddi sér á gómsætum pizzum ásamt því að leika lausum hala í leiktækjum Smárabíós. Í byrjun næsta skólaárs tekur svo nýr hópur vinaliða við keflinu. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar