Rúna bakar lummur! Sumar á Króki

Burstabærinn Krókur á Garðaholti verður opinn alla sunnudaga í sumar frá klukkan 12-17. Sunnudaginn 6. júní er fyrsti opnunardagur sumarsins en þá hefjast einnig sumarmessur í Garðakirkju. Sumarsunnudagaskóli fyrir börn verður í vinnustofunni á Króki og hefst klukkan 11:00. Að lokinni messu og sunnudagaskóla verður boðið uppá messukaffi í hlöðunni við Krók. Rúna safnvörður á Króki tekur vel á móti gestum en safnið er opið frá klukkan 12-17 og aðgangur ókeypis.
 
Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ á fyrri hluta 20. aldar og er elsti hlutinn frá 1923. Fyrstu árin bjó ekkjan Jóhanna Jóhannsdóttir í Króki ásamt sex börnum og Halldóru móður sinni. Krókur var síðan stækkaður árið 1934 þegar Þorbjörg Stefanía Guðjónsdóttir flutti þangað með fjölskyldu sína, fjögur börn og tengdamóður, Guðrúnu Sveinsdóttur. Bóndi Þorbjargar, Vilmundur Gíslason lá þá á Landspítalanum með berkla og var ekki hugað líf en snéri aftur í faðm fjölskyldunnar eftir tveggja ára sjúkralegu. Þorbjörg og Vilmundur voru síðustu ábúendur í Króki. Þau áttu kýr, hænsni og kindur og ræktuðu grænmeti í matjurtagarðinum við Krók. Auk þess unnu þau bæði úti og á meðan annaðist Guðrún börnin.

Yngstu dætur hjónanna í Króki, Elín og Vilborg, höfðu umsjón með hvernig húsmunum var raðað þannig að allt stendur eins og í tíð móður þeirra enda hefur skapast sú tilfinning að gamla konan hafi bara rétt skroppið af bæ.

Öll húsgögn og munir í Króki voru í eigu síðustu ábúenda og er ómetanlegt að bæði híbýli og innbú hafi þannig varðveist sem heild. Krókur er gott dæmi um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks í þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar.

Mynd: Rúna bakar lummur (ljósmynd Ragnheiður Jósúardóttir)

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins