Rafrænar kosningar í Betri Garðabæ 26. maí – 7. júní

Alls söfnuðust hátt í 250 hugmyndir frá íbúum og yfir 1300 einstaklingar skráðu sig inn á hugmyndasöfnunarvefinn

Hugmyndasöfnun í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæ sem nú er haldið í annað sinn gekk vonum framar dagana 17. febrúar – 8. mars sl. Alls söfnuðust hátt í 250 hugmyndir frá íbúum og yfir 1300 einstaklingar skráðu sig inn á hugmyndasöfnunarvefinn þar sem hægt var að setja inn hugmynd, skoða, líka við eða skrifa rök með eða á móti hugmyndum annarra.

Matshópur skipaður starfsmönnum tækni- og umhverfissviðs fór yfir hugmyndirnar, mat þær og leitaði til annarra sviða og ráðgjafa. Hugmyndir voru metnar út frá þeim skilyrðum sem sett voru í upphafi og að lokum stóðu eftir 23 hugmyndir sem stillt var upp á rafrænan kjörseðil.

Kosningavefur aðgengilegur á gardabaer.is frá 26. maí

23 verkefni eru á rafrænum kjörseðli í kosningunum sem hefjast 26. maí nk og standa til 7. júní. Íbúar sem verða 15 ára á kosningaárinu (fæddir 2006) og eldri, með skráð lögheimili í Garðabæ fá þar tækifæri til að ráðstafa allt að 100 milljónum í verkefni sem þeir vilja sjá framkvæmd í sveitarfélaginu næstu tvö árin. Kjósendum er boðið upp á að hjartamerkja eitt verkefni sem gefur því aukaatkvæði. Þá er mögulegt að greiða atkvæði oftar en einu sinni, en það er nýjasta atkvæðið sem gildir.
Valið fer fram á sérstökum kosningavef sem opnar 26. maí nk. sem verður aðgengilegur frá vef Garðabæjar, gardabaer.is. Allir geta skoðað kosningavefinn en til að kjósa í lokin þegar búið er að velja hugmyndir og ráðstafa fjármagninu þarf að skrá sig inn með öruggum hætti, þ.e. með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Atkvæðið er dulkóðað og aldrei hægt að tengja atkvæði við einstaklinga.

Hægt er að kjósa í eigin tölvum eða snjalltækjum en einnig er hægt að koma og nota tölvur í þjónustuveri Garðabæjar og í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi og Álftanesútibúi.

Hugmyndir íbúa nýtast áfram

Þess má geta að fjölmargar góðar hugmyndir bárust í hugmyndasöfnun verkefnisins og þó þær falli ekki allar undir skilyrði Betri Garðabæjar lifa þær áfram og nýtast í önnur verkefni á vegum bæjarins eða fara beint í framkvæmd. Þannig verður hverju sviði og forstöðumönnum sendar þær hugmyndir sem tilheyra þeim til frekari skoðunar og einhverjum hugmyndum verður vísað beint til umfjöllunar í fastanefndum bæjarins.

Öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnuninni verður svarað og listi verður aðgengilegur á vef Garðabæjar, gardabaer.is, þar sem hægt er að sjá niðurstöður hverrar hugmyndar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar