Rafboði bauð lægst

Á síðasta fundi bæjarráðs voru opnuð tilboð vegna þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar og samþykkti ráðið að taka tilboð lægstbjóðanda, Rafboða ehf.

Eftirfarandi tilboð bárust: Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3

Rafmagnsþjónustan ehf.
17.576.250 17.415.000 17.324.700

Raf og tæknilausnir ehf.
21.950.000 21.950.000 21.950.000

Rafafl ehf.
31.500.000 31.500.000 31.500.000

Eco Raf
23.835.000 23.154.000 26.105.000

TG Raf ehf.
21.371.246 21.371.246 21.371.246

Raflýsing ehf.
17.630.000 17.630.000 19.350.000

Fagtækni ehf.
26.389.652 26.389.652 26.389.652

Rafsetning ehf.
22.016.450 22.623.800 22.623.800

Rafboði ehf.
15.695.650 15.695.650 15.695.650

Rafstoð ehf.
21.889.400 22.412.500 20.785.000

Rafsel ehf.
21.553.000 21.553.000 21.553.000

Á opnunarfundi fór fulltrúi Rafmagnsþjónustunnar ehf. fram á að bókað væri áður en tilboð voru opnuð að útboðið hafi verið kært til kærunefndar útboðsmála en niðurstaða kærumálsins liggur ekki fyrir. Kæran var tekin fyrir á fundi bæjarráðs sem haldinn var 1. febrúar 2022 og var samþykkt að fela Andra Árnasyni, lögmanni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Engar athugasemdir komu fram eftir opnun tilboða.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar