Nýr búsetukjarni fyrir fatlað fólk rís við Brekkuás

Við Brekkuás 2 í Ásahverfi í Garðabæ verður reistur sjö íbúða búsetukjarni fyrir fatlað fólk, ásamt starfsmannaaðstöðu. Föstudaginn 2. september sl. tók Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, fyrstu skóflustungu að búsetukjarnanum. Framkvæmdir á svæðinu fara nú á fullt og verklok eru áætluð um miðjan október 2023 og stefnt að því að íbúar geti flutt inn síðar það ár.

Byggingin verður á einni hæð, staðsteypt og einangruð að utan, klædd með timburklæðningu, heildarstærð 587,6 m2. Arkitekt hússins er AVH ehf – Arkitektúr – Verkfræði – Hönnun og hönnunarstjóri er Anna Margrét Hauksdóttir arkitekt. Landslag ehf sér um landslagshönnun lóðar, Lumex sér um verkfræðiráðgjöf raflagna og Örugg verkfræðistofa sér um brunahönnun hússins. Gunnar Bjarnason ehf. sér um að byggja húsið eftir útboð fyrr í sumar.

Bygging búsetukjarnans er hluti af stefnu bæjarins um áframhaldandi uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk samhliða fjölgun annarra búsetuúrræða og fækkun herbergjasambýla.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins