Nýja brúin þarf að þola að rúmlega 107 þúsund manns þrammi á henni á hverju ári!

Framkvæmdum við endurnýjun á göngubrúnni í friðlandi við Vífilsstaðavatn er lokið og hefur nýja brúin verið tekin í notkun. Upprunalega var umrædd brú smíðuð á staðnum árið 1994 af þáverandi smið bæjarins, Guðmundi Jónssyni. Sumarið 2022 kom í ljós að kominn var tími á endurnýjun brúarinnar og var ráðist í framkvæmdina í lok ágúst.

107,931 heimsókn í fyrra

Nýja brúin er byggð á styrkum stoðum enda þarf hún að þola að rúmlega 100 þúsund manns þrammi á henni hverju ári, en Vífilsstaðavatn hefur löngum verið einn vinsælasti viðkomustaður höfuðborgarsvæðisins meðal náttúruunnenda enda um mikla útivistaparadís að ræða. Umhverfis Vífilsstaðavatn er útivistarstígur sem er um 2,6 km að lengd, þar af er göngubrúin vestan við vatnið. Teljari var settur upp við vatnið í febrúar 2019 og sýna tölur úr honum að heimsóknir að vatninu voru 107,931 talsins árið 2023.

Framkvæmdin var á vegum Garðabæjar og Umhverfisstofnunar. Sameiginleg umsókn Garðabæjar og Umhverfisstofnunar vegna endurnýjunar á brúnni hlaut styrk úr landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru.

Friðland í þéttbýli

Svæðið var friðlýst árið 2007 með það að markmiði að vernda vatnið, lífríki þess og nánasta umhverfi ásamt því að treysta svæðið sem útivistarsvæði.

Mikil áhersla hefur verið lögð á að gera svæðið aðgengilegt fyrir alla. Fræðsluskiltum hefur verið komið upp á svæðinu um lífríki vatnsins, fugla við vatnið og gróður. Hornsílin í vatninu eru heimsfræg, en þau eru sérstök að því leyti að þau skortir kviðgadda. Fuglalífið er fjölskrúðugt, töluvert af andfuglum verpa við vatnið. Flórgoðinn hin síðari ár og mófuglar umhverfis það. Þá eru útivistabekkir meðfram stígnum og þakskýli. Gamla bryggjan var endurgerð vestan við vatnið árið 2005 til að auðvelda aðgengi fatlaðra. Bryggjan var endurbyggð á gömlu bryggjustæði.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar