Núna er ég bara í frekjukasti og það verða bara spiluð lög eftir mig

Þúsundþjalasmiðurinn Einar Bárðar verður með tónleika á Sjálandi í Garðabæ föstudagskvöldið 9. mars. Hann verður ekki einn því Gunnar Ólason úr Skítamóral og Magni “okkar” Ásgeirsson verða með honum á sviðinu.
,,Ég hlakka mikið til, ég hef gert svona áður en þá vorum við fjórir lagahöfundar saman en núna er ég bara í frekjukasti og það verða bara spiluð lög eftir mig. Held að laga listinn sé eitthvað um átján lög,” segir Einar þegar hann er spurður út kvöldið.

Sögurnar á bak við lögin fá smá svigrúm

,,Ég lofa fólki sem á anna borð hafa gaman af lögunum mínum að það verður mjög gaman. Sögurnar á bak við lögin fá smá svigrúm en þvælast ekki fyrir lögunum,” bæti Einar við.

Samanlagt hafa Gunnar Ólason og Magni Ásgeirsson sungið flest af vinsælustu lögum Einars. Þannig eru hæg heimatökin þegar þeir þrír leiða saman hesta sína.

Skemmtanagildið mun þó örugglega rísa hæðst þegar þeir félagar skauta í gegnum vinsælustu lögin sem Einar samdi fyrir Nylon flokkinn.

Miðasala á tónleika á Sjálandi gengur vel og fer fram á:
https://tix.is/is/event/14606/spenntir-ein-ar-magni-og-gunnar-ola-flytja-aldamota-hittara-einsa-bar-ar/

Um og upp úr síðustu aldamótum var Einar Bárðarson fyrirferðarmikill laga- og textahöfundur. Hann samdi mörg af vinsælustu lögum Skítamórals, Á móti sól og Nylon- flokksins. Þá samdi hann vinsæl lög fyrir flytjendur á borð við Stjórnina, Björgvin Halldórsson, Jóhönnu Guðrúnu, Ingó og veðurguðina, Hvanndalsbræður, Garðar Thór Cortes og fleiri.

Hann vann söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2021 og samdi lagið Áfram Ísland fyrir íslenska landsliðið í fótbolta sem komið hefur út í minnst þremur útgáfum.

Hægt er að hlusta á lagalista bestu laga Einars á Spotify:
https://open.spotify.com/playlist/4MSIE-2Segv8crumKsh14ZT?si=d8cf46780ae-b466a

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar