Njótum efri áranna

Eldri borgarar eru langt frá því að vera einsleitur hópur einstaklinga sem náð hefur ákveðnum aldri. Árafjöldi er einfaldlega ekki besti mælikvarðinn á hvort einstaklingar teljast aldraðir. Á síðustu áratugum hefur lífaldur okkar Íslendinga lengst sem og lífsgæði okkar batnað. Má því meðal annars þakka aukinni áherslu á andlega-, félagslega- og líkamlega heilsu ásamt þjálfun minnis og örvun á heilastarfsemi.

Mikilvægi almennrar heilsueflingar

Regluleg hreyfing er mikilvæg fyrir alla aldurshópa en hún er ekki hvað síst mikilvæg þegar á efri árin kemur. Hreyfing dregur úr einkennum öldrunar og því er heilsuefling og markviss þjálfun ef til vill aldrei mikilvægari heldur en einmitt þá. Til að vinna enn betur að bættri heilsu eldri borgara í Garðabæ voru gerðir nýir samstarfssamningar á síðasta ári við félög eldri borgara í bænum. Samningarnir tryggja að félögin eru betur í stakk búin til að bjóða upp á fjölbreytt framboð af hreyfingu og heilsueflingu. Í framhaldinu var Janusar verkefnið innleitt og hefur aðsóknin í það verið mjög góð. Verkefnið er kærkomin viðbót við aðra skipulagða hreyfingu sem er í boði hjá félögum bæjarins.

Félagsleg samskipti

Við mannfólkið erum félagsverur og því hafa félagsleg tengsl áhrif á heilsu okkar, líðan og jafnvel lífslíkur. Einnig sýna rannsóknir að góð félagsleg tengsl eru einn mikilvægast þátturinn sem stuðlar að hamingju. Til að vinna gegn félagslegri einangrun og einmanaleika eldri borgara er mikilvægt að efla tengslin og skapa aðstæður til samneytis. Á þetta ekki síst við nú þegar við sjáum fram á afléttingu samkomutakmarkana. Það er því gaman að fylgjast með þeirri miklu aðsókn og grósku í öllu félagsstarfi eldri borgara í Garðabæ. Til að vinna áfram að því að skapa aðstæður til góðra tengsla og samveru milli einstaklinga er nú unnið að nýrri og endurbættri aðstöðu fyrir félagsstarf eldri borgara í bænum. Á miðsvæðinu á Álftanesi, sem nú er í byggingu, er meðal annars gert ráð fyrir sérstakri félagsaðstöðu fyrir eldri borgara. Stækkun og breyting á Jónshúsi er í skoðun ásamt því að einstakar aðstæður eru til hreyfingar, samveru og félagsstarfa í Miðgarði, nýja fjölnota íþróttahúsinu okkar.

Nýtum tæknina

Mikilvægt er að fjölbreytt húsnæði sé í boði í Garðabæ enda eru þarfir og óskir íbúa mismunandi eftir æviskeiðum. Tryggja þarf fjölbreyttan stuðning og heimaþjónustu til að auðvelda eldra borgurum að búa á sínu eigin heimili eins lengi og vilji þeirra stendur til. Þjónustuþörf á að vera metin í samtali og samvinnu við hvern og einn enda erum við sérfræðingar í okkar eigin lífi. Þjónustan þarf að taka mið af þróun og nýsköpun í tækni sem getur auðveldað öllum daglegar athafnir, tryggt enn betur þjálfun og umönnun ásamt því að veita öryggi. Þjálfun í notkun og umgengi við tæknilausnir er því nauðsynleg og styður við samfélagsþátttöku eldri borgara.

Ég vil halda áfram að leggja mitt af mörkum til að eldri borgarar í Garðabæ geti notið efri áranna á þann hátt sem hentar hverjum og einum og í umhverfi sem býður upp á fjölbreytta valkosti.

Björg Fenger
Forseti bæjarstjórnar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs.
Sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins