Mozart við kertaljós í Garðakirkju

Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin og verða tónleikarnir í Garðakirkju þriðjudagskvöldið 21. des kl.21.00
Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í tuttugu og níu ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Emilia Rós Sigfúsdóttir flautuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir og Guðrún Þórarinsdóttir víóluleikarar og Sigurður Haldórsson sellóleikari.

Efnisskráin er glæsileg en fluttur verður strengjakvartett kv. 160 og flautukvartett kv 285 eftir Mozarts auk kvintetts fyrir klarinettu og strengi eftir Franz Krommer samtímamann Mozartz.
Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.

Tónleikarnir eru auk þess í Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudagskvöldið 22. des.
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00.
Aðgangseyrir er kr. 3500 og kr. 2500 fyrir nemendur og eldri borgara. Miðasala við innganginn og á Tix.is

Miðað við núgildandi sóttvarnarreglur þarf að sýna neikvætt hraðpróf við innganginn.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins