Málstofa um blaðamennsku falsfréttir og upplýsingaóreiðu var haldin í FG, á vegum nemenda í blaðamennsku og fjölmiðlafræði, föstudaginn 30. janúar síðastliðinn. Fjölmiðlar og frjáls fjölmiðlun eru almennt taldir vera helstu hornsteinar lýðræðisins og hlutverk blaðamanna þar í öndvegi.
Það var valinkunnur hópur fjölmiðlafólks sem sat í pallborði og ræddi málin við nemendur. Samanlögð reynsla þátttakenda í blaðamennsku er í kringum 100 ár.
Fremstur meðal jafningja í hópnum var ef til vill Bogi Ágústsson, einn frægasti fréttaþulur landsins. Hann hefur starfað við blaðamennsku frá því árið 1977, starfar enn á RÚV, les þar fréttir og framleiðir fjölmiðlaefni, mikið um erlendar fréttir og málefni.
Þá tók einnig þátt Guðrún Hálfdánardóttir, fyrrum vefritstjóri MBL.is, sem hóf göngu sína árið 1998, þá fyrsti blaðamaður vefsins. Nú starfar Guðrún við þátta og dagskrárgerð á RÚV. Það kom fram í máli hennar að þegar hún hætti á MBL.is árið 2021 var tekin saman fjöldi frétta sem hún hafði skrifað og var sú tala í kringum 100.000 talsins. Geri aðrir betur.
Í pallborðinu var einnig Sunna Sæmundsdóttir, varafréttastjóri Stöðvar tvö, Bylgjunnar og vísir.is. Hún sagði meðal annars frá starfsemi miðlanna sem hún starfar við og henni var hlutverk frétta og fréttaflutnings hugleikið. Fréttir Stöðvar 2 hafa nú um skeið verið sendar út í opinni dagskrá og keppa þar með við RÚV um athygli landsmanna, en þetta eru jú risarnir á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Að jafnaði horfa eða hlusta um 260.000 Íslendingar á fréttir á degi hverjum hér á landi.
Erla Hlynsdóttir, blaðakona og vefréttastjóri Heimildarinnar, tók einnig þátt og sagði frá störfum sínum. Þar á meðal reynslu sinni af þremur dómsmálum sem hafa verið höfðuð gegn henni fyrir vinnu sína, sem öll fóru alla leið til Mannréttindadómstólsins í Strassborg í Frakklandi.
Í öllum þremur vann Erla sigur gegn íslenska ríkinu, síðast árið 2014. Íslenska ríkið var dæmt fyrir að brjóta á henni í sambandi við ákvæði um tjáningarfrelsi og henni dæmdar skaðabætur. Eftir þessi mál breyttist starfsumhverfi blaðamanna til hins betra hér á landi.

Forvitnir nemar
Nemendur FG voru forvitnir og spurðu ýmislegra spurninga sem snerust meðal annars um dagleg störf blaða og fréttamanna, sem sennilega hafa aldrei verið jafn mikilvæg og nú, þegar falsfréttir og upplýsingaóreiða eru að sumu leyti meginstef daglegrar umræðu.
Allir þátttakendur voru sammála um að störf blaða og fréttamanna væru mjög fjölbreytt og skemmtilegt og að enginn dagur væri öðrum líkur. Allt gæti í raun gerst, eldgos hafist, ríkistjórnir fallið og fleira slíkt. En þau bættu líka við að það færi enginn i blaðamennsku til þess að verða ríkur og að almennur og mikill áhugi á því sem væri að gerast í samfélaginu væri nauðsynleg forsenda starfsins.
Keyrði sofandi til Keflavíkur
Þau voru síðan spurð um eftirminnilega eða furðulega frétt sem þau hefðu skrifað og það var Guðrún Hálfdánardóttir, þá á MBL.is, sem átti vinninginn: ,,Ein sú allra furðulegasta sem ég hef skrifað gerðist árið 2009. Þá gekk ung stúlka í svefni þar sem hún var stödd með foreldrum sínum í Húsafelli í Borgarfirði og þetta endaði með því að hún tók jeppa foreldranna, bílprófslaus, keyrði hann alla leið til Keflavíkur, í svefni, og meðal annars í gegnum Borgarfjarðargöngin,“ sagði Guðrún. ,,Þessi frétt vakti alveg rosalega athygli, það fór allt á hliðina þegar hún birtist og þetta var mjög eftirminnilegt,“ bætti Guðrún við.
Mikilvægt að sannreyna fréttir
Í sambandi við falsfréttir og upplýsingaóreiðuna voru þátttakendur sammála um það ein helsta leiðin til að eiga við þetta væri að taka ekki öllu sem gefnu og sannreyna fréttir, t.d. með því að athuga hvor fleiri miðlar væru með viðkomandi frétt.
Að vera gagnrýnin á fjölmiðlaefni væri líka mjög mikilvægt og að líkurnar á því að fréttir væru sannar og réttar væru meðal annars meiri hjá miðlum þar sem greitt er fyrir fréttir.
Þar með lauk málstofunni, sem stóð í tæpar tvær klukkustundir, en það var Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, stjórnmálafræðingur og kennari í FG, sem stjórnaði henni, en hann var meðal annars fréttaritari RÚV í Svíþjóð á árunum 1998 til 2007.
Forsíðumynd: frá vinstri; Erla, Sunna, Guðrún og Bogi.