Lífið getur ekki alltaf verir kók og lakkrísrör! ,,Hvar er draumurinn?” sýndur í Verzló með Garðbæinga innanborðs

Nemendamótsnefnd Verzlunarskóla Íslands hefur nú sett upp og kynnir með stolti söngleikinn “Hvar er draumurinn?”, skrifaður og leikstýrður af Höskuldi Þór Jónssyni, en í leikhópnum eru nokkrir Garðabæingar.
Þessi húmoríski söngleikur nýtir sér frábæra smelli frá hljómsveitinni Sálinni hans Jóns míns og segir frá ungmen-num sem reyna að finna sig og njóta lífsins en þurfa að glíma við staðreyndina að lífið getur ekki alltaf verið kók og lakkrísrör. Þessi 90’s sprengja hefur mögnuð dansatriði og frábæran söng og auðvitað glæsilegan leik!
Hvar er draumurinn er sýndur í leikhúsinu í Verzló sem hefur verið sett upp af nemendum skólans.

Eins og áður segir eru í leikhópnum þó nokkrir Garðbæingar sem standa sig með mikilli prýði, en það eru þau eru Aðaldís Emma Baldursdóttir, Andrea Örvarsdóttir, Alexander Kaaber Bendtsen, Aron Atli Gunnarsson, María Vignir, og Nadía Hjálmarsdóttir.

Fyrir áhugsama þá er miðasala á NFVI.is

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins