Leitað eftir umsögnum frá íbúum

Nú hafa drög að endurskoðaðri lýðræðisstefnu Garðabæjar litið dagsins ljós en stefnan var unnin af þverfaglegum starfshópi starfsmanna í samráði við fjölskylduráð Garðabæjar.
Lýðræðisstefna Garðabæjar byggir á meginmarkmiðunum þátttöku, þekkingu og þróun. Stefnan tekur jafnframt mið af þeim undirmarkmiðum Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem Garðabær hefur valið sér til innleiðingar og Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna. Í öðrum stefnum Garðabæjar líkt og jafnréttisstefnu, lýðheilsu- og forvarnastefnu, skólastefnu og þjónustustefnu eru áherslur og markmið sem tengjast lýðræðisstefnu bæjarins. Einnig var stuðst við handbók Sambands íslenskra sveitarfélaga um íbúasamráð við gerð stefnunnar.

Hvernig viltu taka þátt og hafa áhrif?
Á vef Garðabæjar, gardabaer.is, er hægt að lesa drögin að endurskoðaðri lýðræðisstefnu bæjarins ásamt drögum að viðaukum með stefnunni. Búið er að setja upp samráðsgátt þar sem hægt er að setja inn umsögn um stefnuna, aðgerðaráætlun eða fylgiskjöl. Einnig er hægt að skila inn tillögum um hvernig íbúar vilja taka þátt og hafa áhrif í einstaka málaflokkum. Stefnudrögin hafa einnig verið send í umsagnarferli til nefnda bæjarins.

Íbúar Garðabæjar eru hvattir til að kynna sér efni stefnunnar og fylgiskjala og koma með ábendingar og tillögur um lýðræðismál í sveitarfélaginu. Samráðsgáttin verður opin fram í miðjan nóvember.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins