Leikskóli á tímamótum

Mönnunarvandi leikskólanna er ekki nýr af nálinni en staðan þyngist eftir því sem tíminn líður. Tvær lykilbreytur hafa haft mikil áhrif á þá stöðu. Annars vegar lög um eitt leyfisbréf þvert á skólastig sem tóku gildi árið 2020 og hins vegar innleiðing á styttingu vinnuvikunnar.

Áhrifin gæta m.a. í því að leikskólakennarar færa sig í meiri mæli yfir í grunnskólann til starfa. Tölurnar tala sínu máli en á sama tíma og 298 leikskólakennarar kusu að færa sig yfir í grunnskóla voru það aðeins 97 grunnskólakennarar sem kusu að færa sig til og starfa í leikskólum. Við lagabreytinguna missti leikskólastigið 201 kennara í einni svipan. Það er þungt högg fyrir skólastig sem þegar berst í bökkum.

Stór munur á starfsumhverfi

Afleiðingarnar máttu öllum vera ljós, enda hefur starfsumhverfi grunnskólakennara lengi þótt eftirsóknarverðara en það sem leikskólinn býður upp á. Meginástæður þess að skólastigin eru misaðlaðandi fyrir kennara eru fyrst og fremst ólíkar starfsaðstæður og vinnutímafyrirkomulag. 

Við getum ekki lengur haldið áfram að tala um vandann, við þurfum að sýna ábyrgð og hafa kjark til að breyta kerfi sem er sprungið. Margir leikskólar þurfa að grípa til lokunar deilda vegna manneklu og ástandið kemur niður á öllum sem í hlut eiga. Börnum, starfsfólki og foreldrum.

Tími breytinga er núna

Við í Viðreisn viljum bæta ástandið og því lagði ég fram tillögu nýverið um alvöru breytingar í bæjarstjórn Garðabæjar.  Kerfisbreytingar sem fela í sér endurskoðun á starfsumhverfi leikskólakennara með það að markmiði að samræma starfsumhverfi grunnskólakennara þannig að vinnutími leikskólakennara verði sambærilegur vinnutíma grunnskólakennara. 

Þetta er hægt að útfæra með ákveðnum skipulagsbreytingum og styttingu vinnuviku leikskólakennara, án mikils kostnaðar. Á móti fáum við fleiri kennara á leikskólastigið.

Nýir tímar

Vandi leikskólans sem við okkur blasir í dag verður ekki leystur með plástrum hér og þar. Það þarf fólk sem þorir að taka ákvarðanir um alvöru breytingar, kerfisbreytingar í takt við það umhverfi sem við búum við og höfum skapað leikskólum. 

Við í Viðreisn teljum Garðabæ hafa alla burði til að leiða þær breytingar og tala hátt fyrir þeim meðal allra sveitarfélaga. Tillagan mín verður send til umfjöllunar innan Sambands íslenskra sveitarfélaga sem og til Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, þar sem önnur sveitarfélög munu vonandi líka hafa kjark til að standa með þessum nauðsynlegu breytingum.
Það er vor í lofti og ferskir vindar farnir að blása með Viðreisn í Garðabænum.

Sara Dögg Svanhildardóttir
Oddvit og bæjarfulltrúi Viðreisnar í Garðabæ

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar