Læra allar óskráðar reglur um vináttu, félagsfærni og samvinnu – Ný fimm ára deild við Sjálandsskóla

Ný fimm ára deild við Sjálandsskóla tekur til starfa í haust og innritun er hafin. Starfið í leikskóladeildinni samtvinnast markvisst við grunnskólann og börnin taka þátt.

„Vinátta er öllum mjög mikilvæg en er ekki öllum meðfædd. Við þurfum að læra hvernig við getum verið góðir vinir og í vetur ætlum við að læra um allar þessar óskráðu reglur um vináttu, félagsfærni og samvinnu,“ segir Elín Ósk Þorsteinsdóttir, leikskólastjóri nýrrar fimm ára leikskóladeildar í Sjálandsskóla. Deildin tekur til starfa í haust og innritun er hafin. Þar sem leikskóladeildin er í sama húsnæði og grunnskólinn Sjáland veitir það góð tækifæri til að brúa bilið á milli skólastiga. Starfið í leikskóladeildinni samtvinnast markvisst við grunnskólann og börnin taka þátt.
„Við ætlum að vinna í góðri samvinnu með grunnskólanum í Sjálandsskóla og taka þátt í skólasamsöng á hverjum morgni ásamt því að efla vináttu milli bekkja,“ segir Elín Ósk sem er reynslumikill leikskólakennari og hefur meðal annars verið sérkennslustjóri hér í Garðabæ á leikskólanum Kirkjubóli og aðstoðarleikskólastjóri á leikskólanum Sunnuhvoli.

Foreldrum barna í Garðabæ stendur til boða að innrita fimm ára börn í Sjálandsskóla, en Garðabær hefur um áraraðir rekið slíka deild við Flataskóla með góðum árangri. Fimm ára deild í Flataskóla er ekki valkostur á næsta ári vegna endurbóta á húsnæði skólans.

„Sjálandsskóli er einstaklega fallegur grunnskóli þar sem aðgangur er að sundlaug, íþróttasal, textílstofu, smíðastofu, bókasafni, tónlistastofu o.fl. sem við ætlum að nýta til hins ítrasta. 
Við ætlum einnig að nýta okkur fallegt umhverfi skólans svo sem fjöru- og menningarferðir,
náttúrskoðun og upplifanir af öllu tagi.“ segir Elín.

Börnin munu vinna í gegnum leik og læra meðal annars jóga, hugarfrelsi, bóklestur, sammvinnuspilun og markmiðasetningu að ógleymdum vinastundum. 

Áhersla skólans verður á gildin:

  • ábyrgð
  • framsýni
  • virðingu
  • samvinnu
  • jafnvægi

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins