Kusk og Óviti, KK, Jói Pé og félagar og GDRN munu stíga á svið á Rökkvunni 12. október

Nú styttist óðfluga í Rökkvuna sem er listahátíð sem fer fram þann 12. október á göngugötunni Garðatorgi. Verkefnastjórar hátíðarinnar eru ungt listafólk sem brennur fyrir menningarmálum bæjarins en það eru þau Einar Magnússon og María Bóel Guðmundsdóttir. Að sögn hlakka þau mikið til hátíðarinnar og búast við góðri mætingu.

Hátíðin mikilvæga fyrir menningarlíf Garðabæjar

,,Hátíð eins og Rökkvan, þar sem ungt fólk fær að spreyta sig en síðan líka njóta þess að hlusta á reyndari tónlistarmenn, skiptir samfélagið miklu máli og að geta boðið upp á svona flotta dagskrá, fólki að kostnaðarlausu, er ekki sjálfgefið. Garðabær á heiður skilið,“ segja þau Einar og María.

Tónlistin verður í fyrirrúmi á hátíðinni, en einnig munu gestir njóta listasýningar í Betrunarhúsinu og verður lista- og handverksmarkaður reistur á torginu. Hátíðin nær hápunkti á stórtónleikum þar sem Kusk og Óviti, KK, Jói Pé og félagar og GDRN munu stíga á svið.

Um miðjan dag fer fram dagskrá sem ætluð er fjölskyldum en klukkan 14 fer fram tónlistarsmiðja með Ingibjörgu Fríðu og Sigurði Helga sem ber yfirskriftina Klapp, klapp, stapp, stapp. Öll fjölskyldan ætti að hafa mjög gaman af því að taka þátt en strax að lokinni smiðju leikur Rökkvubandið stuðtónlist eins og þeim er einum lagið. Dagskránni um miðja dag lýkur svo með Stórsveit Tónlistarskóla Garðabæjar sem er alltaf gaman að fylgjast með enda hafa krakkarnir í sveitinni leikið á sín hljóðfæri frá unga aldri.

Dagskrá Rökkvunnar er ókeypis og öll velkomin meðan hús rúm leyfir. Drykkir verða til sölu um kvöldið og búast má við tilboðum í tilefni Rökkvunnar hjá fyrirtækjum á Garðatorgi.

KK
Jói P og félagar
Kusk og Óviti

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins