Krókur opinn alla sunnudaga í sumar

Eins og fyrri ár er hægt að heimsækja burstabæinn Krók á Garðaholti á sunnudögum í sumar.  Krókur er opinn alla sunnudaga fram í lok ágúst frá kl. 12-17 og aðgangur er ókeypis. 

Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær í eigu Garðabæjar sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjörgu Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985.

Tilvalið er að fara í göngutúr um Garðaholtið og koma við í Króki í leiðinni einnig er hægt að leggja bílum við samkomuhúsið á Garðaholti (Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu) við gatnamót Garðavegar og Garðaholtsvegar.

Sumarmessur í Garðakirkju og sunnudagaskóli í Króki

Í sumar er bærinn Krókur í samstarfi við Sumarmessur í Garðakirkju og alla sunnudaga í sumar verður messa í Garðakirkju kl. 11. Á meðan á sumarmessum stendur verður sunnudagaskóli fyrir börn í Króki og hefst sunnudagaskólinn kl. 11 alla sunnudaga.

Að lokinni sumarmessu verður boðið upp á veitingar í hlöðunni við Krók og jafnvel óvæntar uppákomur. Krókur er í göngufæri frá Garðakirkju. Sumarmessur í Garðakirkju er samstarfsverkefni kirknanna í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi, þ.e. Ástjarnar-, Hafnarfjarðar-, Víðistaða-, Bessastaða-, Vídalíns- og Fríkirkjunnar.

Mynd. Hljóðfæraleikur við Krók á Garðaholti 17. júní sl.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar