Katrín Björt fékk bókina Stúfur fer í sumarfrí

Katrín Björt Birgisdóttir, 7 ára nemandi í Sjálandsskóla var dregin út í Sumarlestri Bókasafns Garðabæjar föstudaginn 17.júní.  Hún las bókina Handbók fyrir ofurhetjur og setti umsögn í lukkukassann. Í verðlaun fékk Rósa bókina Stúfur fer í sumarfrí eftir Evu Rún Þorgeirsdóttur. Þema Sumarlesturs í ár er sjávardýr í undirdjúpunum og hvetur hákarlinn hann Bauni bókó alla krakka til að dýfa sér á bólakaf í bókaflóð og sækja sér skemmtilegar bækur á bókasafnið því Sumarlestur er hafsjór af fróðleik og fjöri.

Katrín Björt les mjög mikið, jafnvel margar bækur á dag! Hún hafði skilað inn þó nokkrum miðum í lukkukassann og átti því sannarlega skilið að vera dregin út. Henni finnst bækurnar um Heyrðu Jónsi og Handbók fyrir ofurhetjur vera mjög skemmtilegar og fyndnar en að vísu helst til stuttar! Hún er nefnilega vön því að lesa langar bækur eins og sögurnar um Hulduheima. Katrín Björt ætlar að halda áfram að vera dugleg að lesa í allt sumar og taka með sér bækur í útilegur sumarsins. 
     
Lestrarhestur vikunnar verður dreginn út hvern föstudag í sumar til 12.ágúst. Sumarlestri lýkur með uppskeruhátíð  laugardaginn 20.ágúst klukkan 12 og þá munu allir virkir þátttakendur fá glaðning og þrír lestrarhestar verða dregnir úr umsagnarmiðum sumarsins. Gunnar Helgason les úr nýjustu bók sinni kl 13. Stígum lestrarölduna og lesum saman í sumar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins