Íþróttafólk Garðabæjar 2024 – Óskað eftir tilnefningum

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar leitar til almennings til að fá sem gleggstar upplýsingar um árangur íþróttafólks í Garðabæ vegna viðurkenninga sem veittar verða á Íþróttahátíð bæjarins í janúar.

Viðurkenningar hljóta aðeins þeir sem keppa með félögum í Garðabæ eða stunda íþróttagreinar utan Garðabæjar sem ekki eru í boði innan bæjarfélagsins á því getustigi.

ÓSKAÐ ER EFTIR TILNEFNINGUM TIL:

1. Íþróttafólk Garðabæjar: Tilnefningar um einstaklinga sem skarað hafa fram úr í sinni íþrótt til að hljóta sæmdarheitið íþróttamaður ársins. Umsögn þarf að fylgja.

2. Landsliðsþátttaka: Óskað er eftir upplýsingum um hverjir hafi keppt í fyrsta skipti með

a) A-landsliði eða

b) U-landsliðum

3. Verðlaun á erlendum vettvangi s.s. HM, EM, NM eða sambærilegum mótum hvort heldur er sem einstaklingar, para- eða í liðakeppni.

Ábendingar þurfa að hafa borist til Kára Jónssonar íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa Garðabæjar með tölvupósti [email protected] í síðasta lagi 4. desember.

Forsíðumynd: Íþróttafólk Garðabæjar 2023, Ísold Sævarsdóttir og Friðbjörn Bragi Hlynsson

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins