Þjónusta við fatlað fólk skal miða að því að fólk fái nauðsynlegan stuðning til þess að geta notið fullra mannréttinda til jafns við aðra og að skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum. Þetta er ekki bara skoðun Viðreisnar í Garðabæ á góðri þjónustu, heldur eru þessi skilyrði bundin í lög, skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Flestir myndu ætla að sveitarfélag eins og Garðabær, sem býr við traustan og góðan fjárhag, myndi leggja sig fram við að tryggja fötluðum þennan rétt til sjálfstæðs lífs. Öllum fötluðum Garðbæingum.
Dóttir mín fær 42% þjónustu
Ég er faðir 9 ára langveikrar og fatlaðrar stelpu. Hún er dásamleg stúlka sem langar að gera svo margt, eins og aðrar 9 ára stúlkur. Hana langar að leika sér með vinkonum sínum og æfa íþróttir. En hún er með metna stuðningsþörf upp á 720 klukkutíma á mánuði og það besta sem Garðabær getur boðið eru 300 klukkutímar.
Dóttir mín fær því aðeins 42% af þeim tíma sem mat á stuðningsþörf nær yfir. Hún fær aðeins 42% af nauðsynlegri þjónustu til að aðstoða hana við að sinna hversdagslegum athöfnum daglegs lífs og taka þátt í samfélaginu sem sjálfstæður einstaklingur. Til þess að fylla upp í þá þjónustu sem hún þarf á að halda verður að treysta á stuðning frá foreldrum og öðrum ættingjum.
Dóttir mín klæðir sig ekki sjálf, borðar ekki sjálf, fer ekki á klósettið sjálf, leikur sér ekki sjálf, kveikir ekki á sjónvarpinu sjálf og listinn heldur áfram. Ef hún vill æfa íþrótt þá þarf hún stuðningsmanneskju, ef hún vill leika við vinkonur sínar þá þarf hún stuðningsmanneskju. Því er það þyngra en tárum taki að hún hafi ekki val um að gera það sem hún vill á sínum forsendum því úthlutuðum tímum í þjónustu dugar ekki til.
Úrelt stefna í málefnum fatlaðs fólks
Á vef Garðabæjar er að finna stefnu sveitarfélagsins í málefnum fatlaðs fólks. Þar er vísað í lög nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks. Stefnan er byggð á lögum sem felld voru úr gildi árið 2018.
Hvers vegna stefna sveitarfélagsins hefur ekki verið uppfærð er engin leið að skilja. Það ætti að vera Garðabæ mikilvægt að gefa réttar upplýsingar um á hverju þjónusta við íbúa er byggð. Helstu skilaboðin sem hægt er að lesa úr þessari úreltu stefnu eru að innan núverandi meirihluta sé ekki mikill áhugi á málefnum fatlaðra í sveitarstjórnarpólitíkinni, þar sem stefnan er sköpuð.
Kominn er tími til þess að Garðabær fari að virða þann rétt sem fatlaðir eiga til að lifa sjálfstæðu lífi og að stefna sveitarfélagsins endurspegli breytta tíma og viðhorf til fatlaðra.
Þess vegna hef ég tekið 4. sæti á lista Viðreisnar fyrir komandi kosningar.
Árni Björn Kristjánsson
Faðir fatlaðrar stelpu og skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ