Hugmyndin er sú að niðjar spili saman

Niðjamót GKG verður haldið 1. júlí nk., en mótið hefur heldur betur fest sig í sessi sem undanfari Meistaramótsins. Hugmyndin er sú að niðjar spili saman, þ.e. barn, faðir/móðir, afi/amma en annarskonar fjölskyldutengsl ganga líka upp.

Keppnisfyrirkomulagið er punktakeppni með greensome fyrirkomulagi, sem felur í sér að báðir liðsmenn slá af teig og skip ast síðan á, þannig að sá sem ekki á upphafshögg slær annað högg. Lið eiga að vera þannig skipuð að annar liðsmaður sé afkomandi hins eða tengdabarn. Mótsstjórn getur samþykkt annarskonar fjölskyldutengsl. Forgjöf liðs verður 40% af leikforgjöf þess sem hærri hefur forgjöfina og 60% af forgjöf þess sem lægri hefur hana.

Verðlaun verða veitt fyrir efstu sæti, nándarverðlaun á öllum par 3 holum og súpa og brauð að leik loknum.

Þátttökugjöld renna óskipt til barna- og unglingastarfs GKG

,,Við hvetjum alla til að taka þátt í þessu stórskemmtilega móti, eiga góðan fjölskyldudag saman og styrkja um leið öflugt barna- og unglingastarf GKG,” segir Úlfar Jónsson PGA golfkennari og þjónustustjóri GKG.

Mynd: Siguvegarar á hinu skemmtilega og vinsæla Niðjamóti GKG í fyrra

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins