Hönnunarsamkeppni um nýjan leikskóla í Urriðaholti

6 deilda leikskóli fyrir allt að 120 börn frá 1 árs aldri

Nýverið rann út frestur til að skila inn tillögum í framkvæmdasamkeppni um tillögu að 6 deilda leikskóla við Holtsveg í Urriðaholti. Samkeppnin er haldin af Garðabæ í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og undirbúningur að hönnunarsamkeppninni hófst síðasta haust og í byrjun árs var auglýst eftir tillögum. Dómnefnd fer nú yfir tillögurnar sem bárust og gert er ráð fyrir að niðurstaða dómnefndar liggi fyrir 4. júní nk. Í dómnefndinni sitja fyrir hönd Garðabæjar Áslaug Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs Garðabæjar sem er jafnframt formaður dómnefndarinnar, Hrefna Gunnarsdóttir, deildarstjóri í Urriðaholtsskóla og Kristjana Fjóla Sigursteinsdóttir, formaður leikskólanefndar Garðabæjar. Freyr Frostason arkitekt og Sigurður Einarsson arkitekt sitja í dómnefndinni fyrir hönd Arkitektafélag Íslands. Ritari dómnefndarinnar er Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar, og trúnaðarmaður er Helga Guðjónsdóttir hjá Arkitektafélagi Íslands.

Dómnefndin! F.v. Áslaug Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður dómnefndarinnar, Hrefna Gunnarsdóttir, deildarstjóri í Urriðaholtsskóla, Sigurður Einarsson arkitekt, Kristjana Fjóla Sigursteinsdóttir, formaður leikskólanefndar Garðabæjar, Freyr Frostason arkitekt og Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar og ritari dómnefndarinnar

Urriðaholt – umhverfisvænt hverfi í vexti
Urriðaholt er eitt nýjasta hverfi Garðabæjar þar sem íbúðabyggð er í örum vexti. Hátt í 2500 manns búa nú í hverfinu og gert ráð fyrir að allt að 4500 íbúum í Urriðaholti þegar það verður fullbyggt. Ljóst er að hefja þarf uppbyggingu nýs leikskóla í hverfinu í takt við íbúafjölgun en fyrir í hverfinu er Urriðaholtsskóli, samrekinn leik- og grunnskóli.

Í deiliskipulagi Urriðaholts er gert ráð fyrir leikskóla á lóð við Holtsveg neðan götu sem opnast út að grænu svæði sem liggur frá efri hluta holtsins niður í átt að Kauptúni. Áætlað er að nýi leikskólinn í Urriðaholti verði 6 deilda leikskóli fyrir allt að 120 börn frá 1 árs aldri. Byggingarframkvæmdir við leikskólann hefjast á þessu ári og gert ráð fyrir að leikskólinn taki til starfa á árinu 2022.

Í uppbyggingu Urriðaholts hefur verið mikil áhersla á að byggðin sé umhverfisvæn og í góðum tengslum við náttúruna í kring. Stefnt er að því að nýi leikskólinn í Urriðaholti verði umhverfisvottuð bygging. Urriðaholt var fyrsta hverfið á Íslandi til að fá vistvottun skipulags samkvæmt vottunarkerfi ,,BREEAM Communities“ sem er ætlað að tryggja lífsgæði og umhverfisvernd með vistvænu skipulagi byggðarinnar. Sjálfbærar ofanvatnslausnir eru í hverfinu sem eru fyrstu sinnar tegundar í íbúabyggð á landinu. Þó að stutt sé í náttúruna úr Urriðaholti liggur hverfið vel við í góðar samgönguæðar þar sem stutt er í Reykjanesbrautina. Síðasta haust hóf Strætó göngu sína í Urriðaholtið með hringleið um hverfið að Vífilsstaðavegi, fram hjá Garðatorgi og að Ásgarði þar sem eru góðar tengingar í aðrar strætóleiðir.

Ljósmynd Þráinn Hauksson, Landslag

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar