Gunnar hættir sem bæjarstjóri Garðabæjar

Yfirlýsing var að berast frá Gunnari Einarssyni bæjarstjóra í Garðabæ þar sem hann hefur ákveðið að hætta sem bæjarstjóri Garðabæjar að loknu þessu kjörtímabili (Sjá yfirlýsinguna hér að neðan)

Ágætu viðtakendur!

Undirritaður hefur ákveðið að hætta sem bæjarstjóri og oddviti meirihlutans í Garðabæ að loknu þessu kjörtímabili, en þá hef ég verið bæjarstjóri Garðabæjar í 17 ár og orðinn 67 ára gamall ef almættið lofar. Ég kom til starfa hjá Garðabæ 25 ára gamall og starfaði sem íþrótta- og tómstundafulltrúi og síðar sem forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs áður en ég var ráðinn bæjarstjóri árið 2005.  Ég hef varið rúmlega 40 árum starfsævi minni í þjónustu við Garðbæinga. Á þessu langa tímabili hef ég tekið virkan þátt í uppbyggingu bæjarins bæði sem embættismaður, stjórnmálamaður og þátttakandi í félagsstarfi innan bæjarmarkanna. Jafnframt hef ég fengið tækifæri frá vinnuveitandanum Garðabæ á að mennta mig til hæstu gráðu.

Við þessi tímamót er mér efst í huga þakklæti. Þakklæti fyrir að fá tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið Garðabæ, að starfa með frábæru samstarfsfólki hvort heldur í stjórnmálum og/eða í starfi mínu sem embættismaður og síðast en ekki síst almennt góð samskipti við bæjarbúa. 

Ég er stoltur af því góða samfélagi sem Garðabær er. Það bíður annarra að leiða starfið áfram, vonandi með það viðhorf að alltaf er hægt að gera betur. Við verðum aldrei búin með verkefnið. Með von um áframhaldandi farsæld fyrir Garðabæ.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri Garðabæjar

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins