Gunnar Einarsson bæjarstjóri hefur setið yfir 300 fundi bæjarstjórnar

Fimmtudaginn 5. maí sl. var 903. fundur bæjarstjórnar Garðabæjar haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu á Garðatorgi. Bæjarstjórnarfundurinn var síðasti fundur núverandi bæjarstjórnar Garðabæjar en ný bæjarstjórn tekur við eftir sveitarstjórnarkosningar 14. maí nk. Fundurinn var jafnframt síðasti bæjarstjórnarfundur sem Gunnar Einarsson bæjarstjóri og bæjarfulltrúi sat en hann lætur brátt af störfum sem bæjarstjóri eftir þetta kjörtímabil. Gunnar Einarsson varð bæjarstjóri í lok maí 2005 og er því brátt búinn að gegna því hlutverki í 17 ár. Hann hefur þó starfað enn lengur fyrir bæinn eða hartnær 40 ár þar sem hann kom fyrst til starfa 25 ára gamall sem íþrótta- og tómstundafulltrúi og síðar sem forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs áður en hann settist í bæjarstjórastólinn.

Bæjarstjórn Garðabæjar vorið 2022. F.v. Ingvar, Sara Dögg, Harpa, Guðjón Erling Friðriksson bæjarritari, Gunnar, Björg, Áslaug Hulda, Sigríður Hulda, Sigurður, Gunnar Valur, Jóna og Almar. Ljósmyndina tók Guðmundur Kr. Jóhannesson.

Yfir 1000 bæjarráðsfundir

Gunnar hefur á ferli sínum sem bæjarstjóri setið nánast alla bæjarstjórnarfundi sl. 17 ár eða vel yfir 300 fundi en bæjarstjórn fundar að jafnaði tvisvar í mánuði nema í júlí. Á þessum tíma hefur Gunnar einnig setið hátt í 800 bæjarráðsfundi sem bæjarstjóri og líklega vel yfir 1000 bæjarráðsfundi ef tíminn sem hann gegndi hlutverki forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs er talinn með. Í yfirlýsingu sem Gunnar gaf út í vetur þar sem hann sagði frá því að hann myndi láta af störfum í vor var honum efst í huga þakklæti ,,Þakklæti fyrir að fá tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið Garðabæ, að starfa með frábæru samstarfsfólki hvort heldur í stjórnmálum og/eða í starfi mínu sem embættismaður og síðast en ekki síst almennt góð samskipti við bæjarbúa“.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar