Greiðslur til forráðamanna leikskólabarna á biðlista teknar upp í Garðabæ

Bæjarráð Garðabæjar hefur samþykkt greiðslur til forráðamanna barna 12 mánaða og eldri sem eru á biðlista eftir leikskólavist í Garðabæ. Um er að ræða reglur sem gefur foreldrum barna með lögheimili í Garðabæ kost á því að sækja um þátttöku Garðabæjar í kostnaði vegna vistunar barns, þar til því býðst vistun á leikskóla í bænum, enda njóti þeir ekki annarra niðurgreiðsla vegna vistunar barnsins.

Greiðslur miðast við almenna niðurgreiðslu hjá dagforeldrum fyrir átta stunda vistun sem er kr. 90.269 á mánuði en greiðslur falla niður þegar barni býðst leikskóladvöl í Garðabæ.

Reglur þessar eru samþykktar í því skyni að brúa bilið frá fæðingarorlofi og þangað til barn fær vistun í leikskóla. Þau börn sem verða orðin 12 mánaða og ekki komin með boð um vistun falla þá undir ofangreindar reglur.

Börn sem fædd eru fyrstu dagana í júní 2021 hafa fengið boð um leikskólapláss í Garðabæ fyrir næstkomandi haust. Næsta úthlutun verður í vikunni eftir verslunarmannahelgi og þá verður börnum fæddum í júní, júlí og ágúst boðin dvöl.

Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðbæjar segir mikið framundan í leikskólamálum: „Við stöndum mjög vel að vígi í Garðabæ þegar kemur að aldri barna við inntöku í leikskóla og höfum það markmið að börn komist í leikskóla við 12 mánaða aldur. Við lítum á reglurnar sem tímabundið úrræði gagnvart börnum sem ekki hafa fengið vistun ársgömul. Mikil uppbygging leikskóla er í gangi í Garðabæ, en áætlanir okkar gera ráð fyrir að alls um 170 leikskólapláss bætist við á næstum mánuðum og misserum. Þar er um að ræða fyrri og seinni hluta Urriðabóls í Urriðaholti og einnig tvær deildir á Mánahvoli sem ekki hafa verið teknar í notkun vegna mönnunar. Þá höfum við sett upp áætlun um eflingu leikskólastigsins með áherslu á að mæta mönnunarvanda og bæta starfsaðstæður. Við munum halda áfram á þeirri braut.“

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar