Góðar umræður á Álftanesi

Þriðji fundur í röð íbúafunda í september var haldinn í Álftanesi miðvikudagskvöldið 21. september sl. Á þessum þriðja fundi voru íbúar á Álftanesi boðnir sérstaklega velkomnir.

Í byrjun fundar var Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar með stutt innlegg, því næst voru stuttar kynningar frá þeim Eiríki Birni Björgvinssyni sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, Þóru Gunnarsdóttur forstöðumanni stoðþjónustu og öldrunarþjónustu á fjölskyldusviði, Guðbjörgu Brá Gísladóttur deildarstjóra framkvæmda- og umhverfis og Arinbirni Vilhjálmssyni skipulagsstjóra. Auk þeirra voru fleiri starfsmenn bæjarins til staðar tilbúnir að svara fyrirspurnum.  Góðar umræður voru að loknum kynningum þar sem fundargestir á Álftanesi báru upp margar fyrirspurnir um m.a. fráveitumál á Álftanesi, sjósund við Nesið, umferðarhraða og umferðaröryggi á Álftanesvegi, sérfræðiþjónustu í skólum, frístundastarf að sumri, stígagerð og umhirðu á opnum svæðum.

Síðastu fundurinn í kvöld

Fjórði og síðasti fundurinn er haldinn í kvöld kl. 19:30 í Sjálandsskóla og þar er íbúar Arnarness, Akrahverfis, Ásahverfis, Garðahverfis, Garðahrauns, Prýðishverfis, í Grundum, í Hleinum, í Hólum og Sjálandshverfis sérstaklega velkomnir.

Samantekt af fundunum og það helsta sem kemur fram á þeim verður birt á vef Garðabæjar að lokinni fundarröð.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar