Gert ráð fyrir 100 milljóna króna í verkefnið Betri Garðabær

Betri Garðabær 2023-2024 er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri framkvæmda í nærumhverfi íbúa í Garðabæ. Verkefnið var sett fyrst á laggirnar árið 2019 og er þetta í þriðja sinn sem verkefnið fer fram. 

Gert var ráð fyrir 100 milljónum króna til verkefnisins 2023-2024. Garðabær er allur eitt svæði í hugmyndasöfnun og kosningu. Við úrvinnslu hugmynda verður leitast við að tryggja að verkefni sem kosið verður um séu landfræðilega dreifð innan sveitarfélagsins. Áhersla er lögð á að verkefnið er þróunarverkefni sem verður þróað áfram með íbúum út frá reynslu, ábendingum og þátttöku. 

Verkefnið byggir á hugmyndum um umræðulýðræði, þátttökulýðræði, þátttökufjárhagsáætlunargerð og að virkja almenning til þátttöku í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku, umfram það sem gerist í hefðbundnu fulltrúalýðræði. 

Verkáætlun og tímasetningar
Verkefnið í heild er í fjórum fösum. Hugmyndasöfnun; umræða um hugmyndir og úrvinnsla; kosningar og framkvæmd. 

Helstu tímasetningar eru eftirfarandi:

  • Hugmyndasöfnun verður frá 21. desember 2023 – 22. janúar 2024 og hægt er að kjósa um verkefni inn á heimsíðu Garðabæjar, gardabaer.is
  • Hugmyndir verða metnar af matshópi verkefnisins sem leggur mat á kostnað við hönnun og framkvæmd.
  • Ákveðnum fjölda hugmynda stillt upp til kosninga.
  • Rafræn kosning um verkefni til framkvæmda í maí 2024. 

Framkvæmd verkefna
Verkefni verða hönnuð, boðin út og framkvæmd frá sumri 2024 og fram á árið 2025 eftir umfangi verkefna. Upplýsingar um stöðu framkvæmda verða aðgengilegar á vef Garðabæjar og verða uppfærðar reglulega. Leitast verður við að hafa samráð við hugmyndasmiði og íbúa um útfærslu verkefna.
Þeim hugmyndum sem ekki ná kosningu verður komið í ákveðinn farveg hjá Garðabæ, t.d. sem ábendingum til fagnefnda eða sem innleggi í skipulagsumræðu.

Aðstoð og upplýsingar
Hægt er að hafa samband við þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 og óska eftir aðstoð.
Öllum stendur til boða að nota almenningstölvur í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi og Álftanesútibúi, og þjónustuveri bæjarskrifstofa Garðabæjar á afgreiðslutíma þessara stofnana.

Spurningar um verkefnið og framkvæmd þess má senda á [email protected] eða með pósti stíluðum á Betri Garðabær, Bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabær.  

Taktu þátt í að gera bæinn okkar betri og sendu inn hugmyndir.

Mynd: Aparóla rétt við Hofsstaðaskóla er ein af mörgum hugmyndum sem hafa komið fram í samráðsverkefninu Betri Garðabær

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins